Til baka
8 Jan 2021

Frumsýning í kvöld!

Hér finnurðu leikskrá sýningarinnar.

Gamanleikurinn Fullorðin verður frumsýndur í Samkomuhúsinu í kvöld. Fullorðin er sprenghlægileg sýning um það skelfilega hlutskipti okkar allra að verða fullorðin og misheppnaðar tilraunir okkar til að sannfæra aðra um að við séum það. 

Leikarar eru Árni Beinteinn Árnason, Birna Pétursdóttir og Vilhjálmur B Bragason en þau eru einnig höfundar verksins. Leikstjórar eru Hekla Elísabet Aðalsteinsdóttir og Marta Nordal. 

Fullorðið fólk á að vita hvað það er að gera! Staðreyndin er hinsvegar að enginn veit hvað hann er að gera og allir eru að þykjast. Það vekur upp stórar spurningar um það hvenær og hvort maður verði nokkurn tímann fullorðinn? Við leggjum upp í ferðalag um fullorðinsárin og restina af þessari afplánun sem flestir kalla mannsævi!

Miðasala í fullum gangi á mak.is

 

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

27 Oct 2026
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi

Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.

15 Oct 2026
Menningarfélag Akureyrar hlýtur viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026

Menningarfélag Akureyrar hefur hlotið viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026 fyrir að hafa náð markmiði um kynjajafnvægi í efsta stjórnendalagi. Þetta er ekki einungis áfangi heldur staðfesting á þeirri vegferð sem stjórnendur Menningarfélagsins hafa verið á, sem er að skapa vinnustað þar sem allir hafa jöfn tækifæri til að vaxa, leiða og hafa áhrif. Jafnvægisvogin er hreyfiaflsverkefni á

Secret Link