Til baka
15 Oct 2024

Full hús

Síðustu daga hefur heldur betur verið húsfyllir í boði Menningarfélags Akureyrar.

Dimma, söngsveitin Fílharmónía, Kammerkór Norðurlands og SinfoniaNord fylltu Hof og sprengdu næstum því þakið af húsinu með magnaðari rokk sinfóníu og viku seinna gerðu þau það sama í stóra sal Hörpu í Reykjavík. Þá sömu helgi var húsfyllir í Samkomuhúsinu á Akureyri þar sem Leikfélag Akureyrar sýndi Litlu Hryllingsbúðina föstudag og laugardag. Viðtökur voru frábærar og munu sýningar á Litlu Hryllingsbúðinni halda áfram út nóvember en þá tekur við jólaleikritið Jóla Lóla. Eins verður stórviðburður í Hofi þann 24. Nóvember þegar Sinfóníuhljómsveit Norðurlands frumflytur tvö íslensk tónverk, eitt eftir Daníel Bjarnason og annað eftir Snorra Sigfús Birgisson. A sama viðburði mun Sinfóníuhljómsveit Norðurlands flytja Boléro eftir Ravel og Greta Salóme mun takast á við einn magnaðasta fiðlusóló klassíska heimsins, Violin Concerto No. 1 eftir Shostakovich.

Það er því heilmikið um að vera á vegum Menningarfélagsins og er þá ótaldir allir aðrir viðburðir sem framundan eru í Hofi.Hægt er að tryggja sér miða á alla viðburði framundan á www.mak.is

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

9 Nov 2026
Stór upptökuhelgi að baki hjá SinfoniaNord

Tónlist fyrir fjórðu þáttaröð sjónvarpsþáttanna Silo og framhald teiknimyndarinnar Lói, þú flýgur aldrei einn var hljóðrituð í Hofi um helgina. SinfoniaNord sinnti þar tveimur alþjóðlegum verkefnum á þremur dögum. Föstudaginn 6. nóvember tók hljómsveitin upp tónlist eftir Atla Örvarsson fyrir fjórðu og síðustu þáttaröð Silo. Þessir vinsælu vísindaskáldsöguþættir Apple TV skarta Rebeccu Ferguson í aðalhlutverki

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

27 Oct 2026
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi

Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.

Secret Link