Til baka
26 Jun 2024

Fúsi á leið í Samkomuhúsið

Leiksýningin Fúsi: Aldur og fyrri störf sem sló í gegn hjá Borgarleikhúsinu á siðasta leikári verður sýnd um mánaðarmótin janúar og febrúar 2025 í Samkomuhúsinu á Akureyri. Sýningin fékk hvatningarverðlaunin á Grímunni 2024 fyrir framúrskarandi nýbreytni í sviðslistum ásamt því að Agnar Jón Egilsson hlaut verðlaun sem Leikstjóri ársins fyrir sýninguna.

Fúsi er húmoristi, fótboltaáhugamaður, leikari, söngvari og lífskúnstner sem minnir okkur á að lífið er alltaf þess virði að lifa því þó að stundum sverfi að. Í sýningunni stiklar Fúsi á stóru og eru atvik úr fjölbreyttri ævi hans færð yfir í leik og söngbúning samhliða hans eigin frásögn. Fúsi glímir við fötlun og eins og segir í upplýsingum um sýninguna þá hafa hindranirnar í lífi hans eflt og hvatt hann til að lifa lífinu til hins ítrasta og njóta hvers einasta dags. Stundum er lífsreynslanþó þess eðlis að aldrei verður fyllilega hægt að komast yfir hana, sama hversu jákvæðurog sterkur einstaklingur er.

Þetta er áhrifamikil og lifandi sýning sem lætur engan ósnortin, sagan er byggð á viðtölum sem leikstjórinn, Agnar Jón tók við Fúsa og þótti honum saga hans það merkileg að hún yrði að verða sögð og að hún yrði að komast á svið. Nú eru það Norðlendingar sem fá að njóta sögu Fúsa á fjölum Samkomuhússins á Akureyri.

Leikarar í verkinu ásamt Fúsa sjálfum eru Halldóra Geirharðsdóttir sem slegið hefur í gegn í sýningunni Níu líf, Bergur Þór, nýráðinn leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar, Agnar Jón Egilsson, leikstjóriog Egill Andrason​

Ath. það er eingöngu ein sýningarhelgi svo tryggið ykkur miða hér:.

Leiksýningin er unnin í samstarfi við sviðslistaframleiðandann Monochrome og List án landamæra.

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

27 Oct 2026
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi

Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.

15 Oct 2026
Menningarfélag Akureyrar hlýtur viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026

Menningarfélag Akureyrar hefur hlotið viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026 fyrir að hafa náð markmiði um kynjajafnvægi í efsta stjórnendalagi. Þetta er ekki einungis áfangi heldur staðfesting á þeirri vegferð sem stjórnendur Menningarfélagsins hafa verið á, sem er að skapa vinnustað þar sem allir hafa jöfn tækifæri til að vaxa, leiða og hafa áhrif. Jafnvægisvogin er hreyfiaflsverkefni á

Secret Link