Til baka
3 Feb 2025

Fúsi slær í gegn í Samkomuhúsinu

Leiksýningin Fúsi – aldur og fyrri störf var sýnd tvisvar um nýliðna helgi og í bæði skiptin fyrir fullu húsi. Viðbrögð við leiksýningum hafa varið með ólíkindum og er greinilegt að saga Fúsa er að snerta huga og hjörtu áhorfenda á margvíslegan hátt. Lof á samfélagsmiðlum byrjaði að birtast nánast strax eftir föstudagssýninguna og eru enn að koma fram frá ánægðum áhorendum.:

“Þvílík og önnur eins upplifun!! mennskan, kærleikurinn, fegurðin, húmorinn og sagan hans Fúsa í mögnuðum kokteil” -María Pálsdóttir

“Það er einfaldlega ekki hægt að fara nægilega fögrum orðum um þessa sýningu.” Sindri Swan

“”Í fljótu bragði er það aðeins leiksýningarnar “Fyrst er að fæðast” og “Jesú litli” sem hafa tætt upp brjóstið á mér og sprengt tilfinningaskalann, eins og “Fúsi”, þvílík dásemd” – Oddu Bjarni

Sökum þessara viðbragða og fjölda anarra hefur verið ákveðið að setja upp aukasýningu fimmtudaginn 20. febrúar og stefnir allt í að sú sýning verði einnig uppseld þar sem miðar hafa rokið út á þeim stutta tíma sem sú sýning hefur verið í sölu. Því er um að gera að hafa hraðar hendur og næla sér í miða á þessa einstöku sýningu.

KAUPA MIÐA

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

27 Oct 2026
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi

Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.

15 Oct 2026
Menningarfélag Akureyrar hlýtur viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026

Menningarfélag Akureyrar hefur hlotið viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026 fyrir að hafa náð markmiði um kynjajafnvægi í efsta stjórnendalagi. Þetta er ekki einungis áfangi heldur staðfesting á þeirri vegferð sem stjórnendur Menningarfélagsins hafa verið á, sem er að skapa vinnustað þar sem allir hafa jöfn tækifæri til að vaxa, leiða og hafa áhrif. Jafnvægisvogin er hreyfiaflsverkefni á

Secret Link