Fyrri sýningu Leikfélags Menntaskólans á Akureyri hefur verið flýtt um klukkustund. Söngleikurinn Ljóska í gegn verður því sýndur kl. 15 og kl. 20 sunnudaginn 15. mars. Allir miðaeigendur á sýninguna sem átti að vera kl. 16 ættu nú að vera búnir að fá tölvupóst þess efnis frá Menningarfélaginu. Ef ekki þá biðjum við ykkur um að hafa samband við miðasöluna með því að senda tölvupóst á midasala@mak.is. Þeim miðaeigendum sem ekki hafa möguleikann á þvi að mæta kl 15 er velkomið að færa miðana sína á aðra sýningu. Næstu sýningadagar eru föstudagurinn 20. mars og sunnudagurinn 22. mars.
Tengdar bloggfærslur
Jólailmur í Hofi á sunnudaginn!
Sunnudaginn 22. nóvember mun árlega hönnunar- og handverkshátíðin Jólailmur fara fram í Menningarhúsinu Hofi frá kl. 12-19. Hátíðin hefur fest sig í sessi undanfarin ár og notið mikilla vinsælda meðal bæjarbúa og gesta. Yfir 30 þátttakendur taka þátt í hátíðinni í ár og verður boðið upp á fjölbreytt úrval af fallegri hönnun, handverki og ljúffengum
Stór upptökuhelgi að baki hjá SinfoniaNord
Tónlist fyrir fjórðu þáttaröð sjónvarpsþáttanna Silo og framhald teiknimyndarinnar Lói, þú flýgur aldrei einn var hljóðrituð í Hofi um helgina. SinfoniaNord sinnti þar tveimur alþjóðlegum verkefnum á þremur dögum. Föstudaginn 6. nóvember tók hljómsveitin upp tónlist eftir Atla Örvarsson fyrir fjórðu og síðustu þáttaröð Silo. Þessir vinsælu vísindaskáldsöguþættir Apple TV skarta Rebeccu Ferguson í aðalhlutverki
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi
Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu


