Til baka
20 Aug 2026

Fyrsti samlestur á nýju leikári

Nýtt leikár Leikfélags Akureyrar hófst á fyrsta samlestri á verkinu Fasteignamartröðin. Um er að ræða nýtt og bráðfyndið samtíma verk sem frumsýnt verður þann 9. október og munu sýningar standa út nóvember. Verkið er eftir litháenska leikskáldið Gabrielė Labanauskaitė og  hlaut hin virtu alþjóðlegu leikskáldaverðlaun Heidelberger Stückemarkt í Þýskalandi árið 2021

Fasteignamartröðin er meinfyndinn spegill á raunveruleika ungs fólks í dag. Verkið fjallar um það fáránlega ferðalag sem fylgir því að kaupa sér sína fyrstu eign í dag. Eftir óvænt sambandsslit þarf Arnrún að finna sér þak yfir höfuðið, hún getur ekki flutt aftur í foreldrahús, líst illa á leigumarkaðinn og ákveður því að kaupa sína fyrstu íbúð. Við tekur grátbroslegt og fáránlegt ferðalag í gegnum frumskóg bankastarfsmanna, fasteignasala og lánardrottna. 

Með hlutverk Arnrúnar fer Urður Bergsdóttir, með önnur hlutverk fara þau Hjalti Rúnar Jónsson, Hólmfríður Hafliðadóttir, Jökull Smári Jakobsson og Vigdís Halla Birgisdóttir. 

Miðasala í fullum gangi! Tryggðu þér miða hér. 

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

27 Oct 2026
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi

Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.

15 Oct 2026
Menningarfélag Akureyrar hlýtur viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026

Menningarfélag Akureyrar hefur hlotið viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026 fyrir að hafa náð markmiði um kynjajafnvægi í efsta stjórnendalagi. Þetta er ekki einungis áfangi heldur staðfesting á þeirri vegferð sem stjórnendur Menningarfélagsins hafa verið á, sem er að skapa vinnustað þar sem allir hafa jöfn tækifæri til að vaxa, leiða og hafa áhrif. Jafnvægisvogin er hreyfiaflsverkefni á

Secret Link