Til baka
18 Dec 2025

Gleði í glæsilegum umbúðum

Gjafakort Menningarfélags Akureyrar er vinsæl gjöf sem hentar við öll tilefni. Margir hafa valið að gefa vinum og vandamönnum þessa öruggu ávísun á upplifun í jólagjöf enda hafa rannsóknir sýnt að list, menning, tónleikar og leikhús hafi jákvæð áhrif á andlega heilsu. 
Það eru fjölmargir viðburðir framundan hjá Menningarfélaginu og er hægt að kaupa bæði almennt kort sem gildir á alla viðburði eða einstaka viðburði. Á nýju ári frumsýnir Leikfélag Akureyrar leikverkið um Birtíng sem heldur betur hefur verið poppað upp í leikgerð og leikstjórn Bergs Þórs Ingólfssonar. Á sviðinu verður 10 manna hljómsveit ásamt leikurum því þessi uppsetning mun bjóða upp á 12 glæný lög eftir söngleikjameistarann Þorvald Bjarna Þorvaldsson. Í janúar mun Ævar Þór heimsækja Samkomuhúsið og sýna einleikinn Kapteinn Frábær sem hlotið hefur frábæra dóma sem og Ævar var tilnefndur til Grímuverðlauna fyrir túlkun sína á hátt í 15 persónum.  Sinfóníuhljómsveit Norðurlands mun heiðra minningu Jóns Nordals á 100 ára fæðingarafmæli hans í mars og Atli Örvars mun stýra Sinfóníuhljómsveit Norðurlands í flutningi á eigin verkum um páska. Auk þessa alls verður fjölbreytt úrval tónleika og viðburða í sölum Hofs í hverri viku. Nú hefur gjafakortið farið í andlitslyftingu og er orðið einstaklega fallegur gripur sem myndi njóta sín vel undir jólatrénu. Hönnun var í höndum Ingibjargar Berglindar hjá Cave Canem. Með gjafakorti Menningarfélags Akureyrar er hægt að gefa sínum nánustu gleði innpakkaða í glæsilegar umbúðir. 

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

9 Nov 2026
Stór upptökuhelgi að baki hjá SinfoniaNord

Tónlist fyrir fjórðu þáttaröð sjónvarpsþáttanna Silo og framhald teiknimyndarinnar Lói, þú flýgur aldrei einn var hljóðrituð í Hofi um helgina. SinfoniaNord sinnti þar tveimur alþjóðlegum verkefnum á þremur dögum. Föstudaginn 6. nóvember tók hljómsveitin upp tónlist eftir Atla Örvarsson fyrir fjórðu og síðustu þáttaröð Silo. Þessir vinsælu vísindaskáldsöguþættir Apple TV skarta Rebeccu Ferguson í aðalhlutverki

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

27 Oct 2026
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi

Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.

Secret Link