Til baka
11 Oct 2024

Gleðilegan frumsýningardag

Eftir skemmtilegt undirbúnings- og æfingaferli er nú komið að frumsýningardegi. Litla Hryllingsbúðin fer á fjalir Samkomuhússins á Akureyri í dag í leikstjórn Bergs Þórs Ingólfssonar og verða sýningar aðeins í október og nóvember.

Litla Hryllingsbúðin er söngleikur eftir Alan Irwin Menken og Howard Ashman og var frumsýndur í litlu leikhúsi í New York árið 1982 og er hann lauslega byggður á fátæklegri gamanmynd með sama nafni frá árinu 1960. þetta er fjórða uppsetningin í íslensku atvinnuleikhúsi, en fyrir átján árum setti Leikfélag Akureyrar verkið upp þar sem Guðjón Davíð Karlsson (Gói) fór með hlutverk hins ólukkulega Baldurs.Þetta er fyrsta leikstjórnarverk nýs leikhússtjóra fyrir Leikfélag Akureyrar.

Frumsýningardagur er alltaf líflegur og skemmtilegur og líklegt að mikill spenningur ríki meðal aðstandenda sem og leikara sýningarinnar.  Aðalhlutverk eru í höndum þeirra Ólafíu Hrannar, Kristinns Óla (Króla), Birtu Sólveigar og húsvíkingsins Arnþórs Þórsteinssonar. Litla Hryllingsbúðin er stútfull af gleði og glaumi, rokki og róli, gamansömum dramaatriðum og dramatískum gamanatriðum.  Við hvetjum alla sem vettlingi geta valdið til að tryggja sér miða á www.mak.is því þeim fer ört fækkandi. Hægt er að kynna sér söngleikinn nánar í rafrænni leikskrá hér. 

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

27 Oct 2026
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi

Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.

15 Oct 2026
Menningarfélag Akureyrar hlýtur viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026

Menningarfélag Akureyrar hefur hlotið viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026 fyrir að hafa náð markmiði um kynjajafnvægi í efsta stjórnendalagi. Þetta er ekki einungis áfangi heldur staðfesting á þeirri vegferð sem stjórnendur Menningarfélagsins hafa verið á, sem er að skapa vinnustað þar sem allir hafa jöfn tækifæri til að vaxa, leiða og hafa áhrif. Jafnvægisvogin er hreyfiaflsverkefni á

Secret Link