Til baka
17 Oct 2024

Gönguferðir um íslenska náttúru urðu að málverkum

Rebekka Kühnis flutti árið 2015 til Akureyrar þar sem hún hefur búið og starfað síðan. Hún fæddist árið 1976 í Windisch í Sviss og stundaði þar nám. Hún lauk meistaragráðu í list- og kennslufræði við Hochschule der Künste í Bern.

Þegar Rebekka fór að skoða landið fótgangandi í gegnum margar gönguferðir rötuðu hughrifin og skynjunin sem hún upplifði smám saman inn í list hennar, þar til Íslenskt landslag var orðið aðalviðfangsefni hennar. Hún segir sjálf að  hún hafi alla tíð haft listræna þörf fyrir að leysa upp umhverfi sitt eða í það minnsta að umbreyta því í eitthvað loftkenndara og óljósara. Hún segist upplifa íslenska náttúru sem ósnortna og ekki eins skilgreinda og afmarkaða og náttúruna í heimalandi sínu. -“Það er eins og allt sé kvikt og breytilegt og að ég sé hluti þess alls. Að baki er einnig grundvallarmeðvitund um stöðuga breytingu alls. Mér hugnast léttleikinn í þessari hugsun.“Rebekka opnar sýningu sína “Hverfult” í Hofi, föstudaginn 18. október kl. 17. Þar sýnir hún ný málverk af einstakri túlkun sinni á íslenskri náttúru auk nokkurra teikninga frá fyrri árum. 

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

17 Nov 2026
Jólailmur í Hofi á sunnudaginn!

Sunnudaginn 22. nóvember mun árlega hönnunar- og handverkshátíðin Jólailmur fara fram í Menningarhúsinu Hofi frá kl. 12-19. Hátíðin hefur fest sig í sessi undanfarin ár og notið mikilla vinsælda meðal bæjarbúa og gesta. Yfir 30 þátttakendur taka þátt í hátíðinni í ár og verður boðið upp á fjölbreytt úrval af fallegri hönnun, handverki og ljúffengum

9 Nov 2026
Stór upptökuhelgi að baki hjá SinfoniaNord

Tónlist fyrir fjórðu þáttaröð sjónvarpsþáttanna Silo og framhald teiknimyndarinnar Lói, þú flýgur aldrei einn var hljóðrituð í Hofi um helgina. SinfoniaNord sinnti þar tveimur alþjóðlegum verkefnum á þremur dögum. Föstudaginn 6. nóvember tók hljómsveitin upp tónlist eftir Atla Örvarsson fyrir fjórðu og síðustu þáttaröð Silo. Þessir vinsælu vísindaskáldsöguþættir Apple TV skarta Rebeccu Ferguson í aðalhlutverki

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

Secret Link