Til baka
16 Apr 2011

Grafíksýningin Ristur

Kristinn G. Jóhannsson sýnir dúkristur og hefur um þær þessi orð: “Ég hefi lengi verið aðdáandi einlægs handbragðs á smíðuðum, ofnum og prjónuðum hversdagshlutum, fordildarlausrar listar. Þar leitaði ég fanga. Skar í dúk mynstur,sótt þangað, þrykkti á pappír og velti fyrir mér á ýmsa vegu. Ég var alls óvanur dúkskurði og ekki sérlega handlaginn heldur, en niðurstaðan þessi.”

Guðmundur Ármann Sigurjónsson sækir viðfangsefnið í náttúruna, hina síbreytilegu birtu sem ljær landinu, himninum, vatninu, fjöllunum og gróðrinum form, sem við nemum í umhverfinu. Skynjun sem grópast í vitundina verður að minni sem er viðmið í sköpunarferlinu. Myndirnar eru óhlutlægar þar sem hefðbundið mótíf er horfið og eftir standa lárétt form sem fljóta frjáls á myndfletinum og skapa skynjun sem vísar til náttúruupplifunar. Ferlinu lýkur svo ekki fyrr en sýningargestir hafa skynjað myndirnar og lagt sinn dóm á hvernig til hefur tekist.

Kristinn G. Jóhannsson. Stúdent frá MA 1956 og lauk kennaraprófi 1962. Starfaði við kennslu og skólastjórn á Patreksfirði, Ólafsfirði og Akureyri í tæpa fjóra áratugi en hefur velt af sér þeim reiðingi. Nam myndlist á Akureyri, Reykjavík og í Edinburgh College of Art. Hann efndi til fyrstu  sýningar sinnar á Akureyri 1954 en sýndi fyrst í Reykjavík, í Bogasal Þjóðminjasafnsins, 1962 og sama ár tók hann fyrsta sinni þátt í Haustsýningu FÍM í Listamannaskálanum. Hefur síðan sýnt oft og víða.

Guðmundur Ármann lauk námi í prentmyndasmíði 1962. Hóf myndlistarnám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1962 og útskrifaðist úr málunardeild 1966. Nám við Valand Konsthögskolan í Gautaborg 1967 og lauk þar námi í grafíkdeild 1972. Kennararéttindanám við Háskólannn á Akureyri 2003 og stundar nú meistaranám í kennslu listgreina. Starfar sem kennari myndlistarkjörsviðs listnámsbrautar Verkmenntaskálans á Akureyri. Er stundakennari við Háskólann á Akureyri. Guðmundur Ármann sýndi fyrst í Mokkakaffi 1962, blekteikningar og kolteikningar. Einkasýningarnar eru á þriðja tug, síðast í Norðurlandahúsinu, Færeyjum, í Gallerí Turpentín og í sal Íslenskrar Grafíkur. Hefur tekið þátt í fjölda samsýninga heima og erlendis, norrænum myndlistarverkefnum og alþjóðlegum grafíksýningum.

 

 

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

27 Oct 2026
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi

Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.

15 Oct 2026
Menningarfélag Akureyrar hlýtur viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026

Menningarfélag Akureyrar hefur hlotið viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026 fyrir að hafa náð markmiði um kynjajafnvægi í efsta stjórnendalagi. Þetta er ekki einungis áfangi heldur staðfesting á þeirri vegferð sem stjórnendur Menningarfélagsins hafa verið á, sem er að skapa vinnustað þar sem allir hafa jöfn tækifæri til að vaxa, leiða og hafa áhrif. Jafnvægisvogin er hreyfiaflsverkefni á

Secret Link