Til baka
24 Oct 2019

Halldór opnar sýninguna LOKSINS ENGIN ORÐ í Hofi

Myndlistarmaðurinn Halldór Ragnarsson opnar sýningu sína LOKSINS ENGIN ORÐ í Menningarhúsinu Hofi laugardaginn 2. nóvember.

Í umsögn Gunnars J. Árnasonar heimspekings um verk Halldórs kemur fram að þau hafi undafarin ár einkennst af stuttum setningum sem eru stimplaðar æ ofan í æ með smágerðu og daufu letri eða páraðar með ákafri rithendi yfir myndflötinn. Runur og spíralar af endurteknum setningum sem vísa í sjálfa sig eða merkingu myndarinnar eru eins og bænaþula sem myndar samfelldan klið á yfirborðinu. 

Gunnar segir Halldór hafa ákveðið að þurrka út öll ummerki um rituð skilaboð í sýningunni í Hofi. „Engin dulin skilaboð, áköll, skírskotanir eða bendingar. Aðeins auðir fletir sem vega salt í einhverri óvissu milli þess sem er annað hvort rétt nýlega yfirstaðið eða hér um bil að skella á. Með því að eyða því út sem hefur verið svo einkennandi fyrir verk hanshingað til er listamaðurinn að gefa út yfirlýsingu um þögn, vissulega þversagnarkennda, en engu að síður afdráttarlausa: Hér hefur ekkert verið sagt og ekkert að tala um.“

Halldór er fæddur í Reykjavík árið 1981. Hann lauk bakkalár- og meistaragráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands, auk þess að nema heimspeki og listfræði við Háskóla Íslands. Hann hefur haldið tólf einkasýningar frá árinu 2005 og tekið þátt í fjölda samsýninga, meðal annars yfirlitssýningu á íslenskri málaralist, Nýmálað, á Kjarvalsstöðum árið 2015. Árið 2018 kom út bók hans Leit að lífi, sem er einskonar ferðasaga listamannsins. Þar tvinnar Halldór saman ljósmyndum og dagbókarbrotum af ferðalagi sínu um sjö eyjar syðst í Karíbahafi veturinn 2017-18.

 Opnun sýningarinnar í Hofi er klukkan 16. Léttar veitingar og allir velkomnir.

 

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

9 Nov 2026
Stór upptökuhelgi að baki hjá SinfoniaNord

Tónlist fyrir fjórðu þáttaröð sjónvarpsþáttanna Silo og framhald teiknimyndarinnar Lói, þú flýgur aldrei einn var hljóðrituð í Hofi um helgina. SinfoniaNord sinnti þar tveimur alþjóðlegum verkefnum á þremur dögum. Föstudaginn 6. nóvember tók hljómsveitin upp tónlist eftir Atla Örvarsson fyrir fjórðu og síðustu þáttaröð Silo. Þessir vinsælu vísindaskáldsöguþættir Apple TV skarta Rebeccu Ferguson í aðalhlutverki

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

27 Oct 2026
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi

Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.

Secret Link