Hárið er fyrsti stóri rokksöngleikurinn og hefur að bera mörg af þekktustu söngleikjalögum allra tíma, þar á meðal; Að eilífu, Blikandi stjörnur, Lifi ljósið og titillag verksins; Hár! Sýningin er sett upp af leikhópnum Silfurtunglinu, þar sem koma saman margir af bestu söngvurum landsins og ljá hrífandi persónum lífi með leik og söng. Ekki missa af þessari einstöku sýningu – áhorfendur enda dansandi uppi á sviði með leikurum og fara heim með sól í hjarta! Hægt er að kaupa miða í sæti eða lautina en sama miðaverð er á báða staðina: sætin eru umhverfis sviðið en í lautinni eru þægindin í fyrirrúmi á teppum og púðum í nánd við leikarana – áhorfandinn upplifir þannig hina sannkölluðu „Woodstock“ stemningu. Miðaverð er 3.950.- MAKE LOVE NOT WAR Leikstjóri: Jón Gunnar Þórðarson Leikmynd: R. Mekkín Ragnarsdóttir Leikarar og söngvarar: Berger: Eyþór Ingi Gunnlaugsson Claude: Matthías Matthíasson Hud: Magni Ásgeirsson Sheila: Jana María Guðmundsdóttir Jeanie: Erna Hrönn Ólafsdóttir Dionne: Ólöf Jara Skagfjörð Voffi: Pétur Örn Guðmundsson
Hljómsveit:
Gítar: Hallgrímur Ingvi Jónasson Bassi: Stefán Gunnarsson Trommur: Valgarður Óli Ómarsson Vinsamlegast athugið að sýningin er ekki við hæfi yngri barna.


