Til baka
18 Sep 2010

Hátíðartónleikar Sveins Dúa og Jóns Svavars

Miðaverð aðeins 1.500 kr.

Um flytjendur Sveinn Dúa Hjörleifsson tenór …og Akureyringur með meiru hefur þrátt fyrir ungan aldur komið fram sem einsöngvari víða um Ísland og erlendis. Hér heima ber hæst að nefna fjölmarga tónleika með Karlakór Reykjavíkur. En á síðustu plötu kórsins syngur Sveinn titillag plötunnar „Áfram veginn”. Hann söng hlutverk Ferrandos í „Cosi van tutte” eftir Mozart í Óperustúdíói Ísl. óperunnar 2008. Erlendis hefur Sveinn einnig getið sér gott orð. Hann leggur nú lokahönd á nám við Tónlistarháskóla Vínarborgar ásamt því að sinna einsöngsverkefnum víða um heim. þar ber hæst að nefna tónleika í mars síðastliðnum í Musikverein í Vínarborg, allnokkrar messur og tónleikar víða um Austurríki, tónleikaferð til Suður Kóreu með Ensemble des Wiener Staatsoper chores. Í ágúst síðastliðin söng hann hlutverk Itulbos í óperunni  „Il pirata”  eftir V. Bellini í Basel á vegum Opera Riehen. Jón Svavar Jósefsson barítón „Sjaldan hefur undirritaður upplifað jafnfjölbreytta og víðfeðma túlkun jafnungs söngdebútants, hvort heldur á alþjóðlega kunnum óperuaríum sem íslenzkum gullaldarsönglögum, og hér var í boði. Lífleg leikræn sviðsframkoma, inntakshlaðin textatúlkun, víðfeðmt styrkleikasvið og litrík tónbeiting, að ógleymdum tandurskýrum framburði – allt lagðist það á eitt um að tjá öllum nærstöddum með sjötommunöglum að hér voru á ferð hæfileikar sem ættu mikið í vændum með sama framhaldi,“ skrifaði Ríkharður Örn Pálsson gagnrýnandi Morgunblaðsins eftir einsöngs-tónleika sem Jón Svavar Jósefsson hélt í Salnum í nóvember 2007. Jón Svavar Jósefsson útskrifaðist frá óperudeild Universität für Musik und darstellende Kunst Wien í júní 2007. Hann hefur sótt fjölda námskeiða í söng og sviðslistum á Íslandi, Belgíu og Austurríki. Jón hefur haldið marga einsöngstónleika og komið víða fram, á Íslandi sem og annars staðar.

Vorið 2008 söng Jón Svavar hlutverk Gulglielmos úr óperunni Cosí fan tutte eftir W. A. Mozart með Óperustúdíói Íslensku Óperunnar. Veturinn 2010 söng Jón einsöng með Sinfoníuhljómsveit Íslands sem hann mun aftur syngja með í haust.

Helga Bryndís  Magnúsdóttir Hefur haldið fjölda einleikstónleika, kammertónleika, leikið einleik með hljómsveitum, með einsöngvurum, kammersveitum og kórum.  Hún hefur leikið inná geisladiska og gert upptökur fyrir útvarp og sjónvarp. Hún býr á Dalvík og starfar einnig sem organisti og kórstjóri

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

9 Nov 2026
Stór upptökuhelgi að baki hjá SinfoniaNord

Tónlist fyrir fjórðu þáttaröð sjónvarpsþáttanna Silo og framhald teiknimyndarinnar Lói, þú flýgur aldrei einn var hljóðrituð í Hofi um helgina. SinfoniaNord sinnti þar tveimur alþjóðlegum verkefnum á þremur dögum. Föstudaginn 6. nóvember tók hljómsveitin upp tónlist eftir Atla Örvarsson fyrir fjórðu og síðustu þáttaröð Silo. Þessir vinsælu vísindaskáldsöguþættir Apple TV skarta Rebeccu Ferguson í aðalhlutverki

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

27 Oct 2026
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi

Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.

Secret Link