Til baka
5 Jan 2018

Heimafólk kitlar hláturtaugar Norðlendinga

Æfingar eru hafnar á gamanleiknum Sjeikspír eins og hann leggur sig hjá Leikfélagi Akureyrar. Að verkinu kemur bæði heimafólk og fólk sem hefur áður gert sig heimakomið á Akureyri. Vandræðaskáldin norðlensku Vilhjálmur Bergmann Bragason og Sesselía Ólafsdóttir setja sterkan svip á uppsetninguna, þar sem þau hafa samið nýja tónlist fyrir verkið. Auk þess þýddi Vilhjálmur verkið og aðlagaði en Sesselía fer með eitt þriggja hlutverka þess. Raunar er ef til vill réttara að segja að hún sé einn af leikurum þess, því hver leikari þarf auðvitað að bregða sér í fjölmörg hlutverk þegar gerð er tilraun til að flytja öll 37 verk William Shakespeare á aðeins 97 mínútum. Jóhann Axel Ingólfsson er nýsnúinn aftur heim til Akureyrar eftir að hafa lokið leiklistarnámi í New York og bregður sér m.a. í hlutverk sjálfrar Júlíu. Benedikt Karl Gröndal snýr svo aftur til Akureyrar til að taka þátt í uppsetningunni en hann hefur heldur betur kitlað hláturtaugar Akureyringa áður, m.a. í gamanverkinu Þetta er grín, án djóks.

Það var líf og fjör á fyrsta samlestri og ljóst að gestir Samkomuhússins eiga von á góðri skemmtun. Nú þegar er orðið uppselt á frumsýninguna þann 2. mars, en hér má tryggja sér miða á aðrar sýningar.

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

27 Oct 2026
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi

Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.

15 Oct 2026
Menningarfélag Akureyrar hlýtur viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026

Menningarfélag Akureyrar hefur hlotið viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026 fyrir að hafa náð markmiði um kynjajafnvægi í efsta stjórnendalagi. Þetta er ekki einungis áfangi heldur staðfesting á þeirri vegferð sem stjórnendur Menningarfélagsins hafa verið á, sem er að skapa vinnustað þar sem allir hafa jöfn tækifæri til að vaxa, leiða og hafa áhrif. Jafnvægisvogin er hreyfiaflsverkefni á

Secret Link