Til baka
13 Dec 2022

Hlátur og notalegheit í Hofi um helgina

Helgin í Hofi einkennist af notalegheitum og hlátri þegar Ari Eldjárn og söngkonan Bríet stíga á svið Hamraborgar. 

Áramótaskop Ara Eldjárns fer fram á laugardagskvöldið. Ari verður með tvær sýningar sem eru báðar uppseldar. Það verður enginn svikinn af því að kveðja árið með ógleymanlegri uppistandssýningu Ara sem er án efa einn vinsælasti uppistandari þjóðarinnar. 

Á sunnudagskvöldið mun tónlistarkonan Bríet halda hátíðlega og kósí tónleika. Á efnisskránni verða lög Bríetar af hennar fyrstu plötu í rólegum búningi ásamt vel völdum jólalögum. Tilvalið tækifæri til að losna frá öllu stressinu í aðdraganda jóla og hlusta á ljúfa tóna. Miðasala er í fullum gangi á mak.is. 

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

27 Oct 2026
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi

Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.

15 Oct 2026
Menningarfélag Akureyrar hlýtur viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026

Menningarfélag Akureyrar hefur hlotið viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026 fyrir að hafa náð markmiði um kynjajafnvægi í efsta stjórnendalagi. Þetta er ekki einungis áfangi heldur staðfesting á þeirri vegferð sem stjórnendur Menningarfélagsins hafa verið á, sem er að skapa vinnustað þar sem allir hafa jöfn tækifæri til að vaxa, leiða og hafa áhrif. Jafnvægisvogin er hreyfiaflsverkefni á

Secret Link