Til baka
6 May 2020

Hof opnar á ný eftir samkomubann

Menningarhúsið Hof hefur opnað á ný. „Við leitum nú leiða til þess að halda viðburði í húsinu, hvort sem um er að ræða tónleika, fundi eða ráðstefnur, í samvinnu við viðburðahaldara og samkvæmt þeim tilmælum sem gefin eru út af hinu opinbera hverju sinni,” segir Kristín Sóley Björnsdóttir viðburðarstjóri Hofs.

Tónlistarskólinn sem staðsettur er á þriðju hæð í húsinu hefur hafið sitt starf á ný með fullum krafti.

Opið er alla virka daga kl 12-16. Frá og með 15. maí er opið þar frá kl. 8.15 – 16. Upplýsingamiðstöð ferðamanna sinnir innlendum ferðamönnum jafnt við erlenda.

Verslunin er opin alla virka daga kl 12-18 og á laugardögum 11-16.

I Kistu er i gangi lagersala þar sem viðskiptavinum hennar gefst kostur á að gera afar góð kaup. Lagersölunni lýkur á laugardaginn með nokkurs konar markaðsstemningu.

Er opin alla virka dags frá kl. 12-16 og býður uppá ljúffengan hádegismat á staðnum eða til fara með. Í stað bröns hlaðborðs um helgar býður veitingastaðurinn viðskiptavinum sínum uppá að panta bröns um helgar til að sækja eða fá sent heim. Panta þarf hjá þeim fyrir kl. 18 á föstu- og laugardegi í gegnum netfangið info@eyrinrestaurant.is.

 

Við hlökkum til að sjá ykkur og njóta menningar með ykkur í menningarhúsinu okkar. Hjartanlega velkomin.

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

27 Oct 2026
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi

Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.

15 Oct 2026
Menningarfélag Akureyrar hlýtur viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026

Menningarfélag Akureyrar hefur hlotið viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026 fyrir að hafa náð markmiði um kynjajafnvægi í efsta stjórnendalagi. Þetta er ekki einungis áfangi heldur staðfesting á þeirri vegferð sem stjórnendur Menningarfélagsins hafa verið á, sem er að skapa vinnustað þar sem allir hafa jöfn tækifæri til að vaxa, leiða og hafa áhrif. Jafnvægisvogin er hreyfiaflsverkefni á

Secret Link