Til baka
15 Sep 2023

Hríseyingurinn Gréta Kristín leikstýrir And Björk, of course í Samkomuhúsinu

Hríseyingurinn Gréta Kristín Ómarsdóttir leikstýrir And Björk, of course eftir Þorvald Þorsteinsson sem Leikfélag Akureyrar frumsýnir í Samkomuhúsinu í febrúar.

Gréta Kristín snýr nú heim eftir meistaranám í leikstjórn í Helsinki. Hún hefur starfað í sviðslistum síðan hún lauk námi við Listaháskóla Íslands árið 2016 og hefur leikstýrt fjölda sýninga í Borgarleikhúsinu, Þjóðleikhúsinu og í sjálfstæðu senunni. Nýleg leikstjórnarverkefni Grétu eru Góðan daginn, faggi (2021) sem Gréta skrifaði ásamt leikaranum Bjarna Snæbjörnssyni og eyfirska tónskáldinu Axel Inga; drag-óperan Die Schöne Müllerinn sem Akureyringurinn Sveinn Dúa Hjörleifsson söng; og verkin Bæng! (2018) og Stertabenda (2016) eftir Marius von Mayenburg, en Gréta var tilnefnd til Grímuverðlauna sem leikstjóri ársins fyrir þær síðastnefndu. Gréta hefur ásamt leikstjórn starfað sem dramatúrg og listrænn stjórnandi Þjóðleikhúskjallarans og kennt hinsegin fræði og femíníska gagnrýni við Listaháskóla Íslands. Árið 2020 gerði Gréta sýninguna Eyju með Steinunni Knúts-Önnudóttur fyrir Leikfélag Akureyrar, en Eyja var sýnd í Hrísey á A! gjörningahátíð það ár.

„Það hefur verið draumur minn síðan ég var menntaskólakrakki með leiklistarbakteríu að fá að setja upp sýningu í Samkomuhúsinu, mér finnst magnað að sá draumur sé að rætast, og jafnframt þýðingarmikið að þetta skuli vera mitt fyrsta verk eftir krefjandi leikstjórnarnám í Finnlandi. Svo er ekki síður spennandi að fá að vinna með þetta eldfima verk Þorvaldar en hans höfundaverk hefur alltaf átt stóran hluta af hjarta mínu og sýn hans á listina og manneskjuna verið mér mikill innblástur í að móta eigin aðferðir og hugmyndir um leikhúsmiðilinn,“ segir Gréta Kristín.

And Björk, of course eftir Þorvald er nærgöngul og hrollvekjandi hásádeila þar sem sjálfsmynd þjóðar er lýst án miskunnar. Verkið er í senn sprenghlægilegt, óviðeigandi og óþægilegt. Leikarar eru Jón Gnarr, Sverrir Þór Sverrisson (Sveppi), Eygló Hilmarsdóttir, Arna Magnea Danks, Davíð Þór Katrínarson, María Pálsdóttir og María Heba Þorkelsdóttir.

Leikfélag Akureyrar býður upp á 15% forsöluafslátt á mak.is.  Tilboðið gildir til 15. október.

 

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

9 Nov 2026
Stór upptökuhelgi að baki hjá SinfoniaNord

Tónlist fyrir fjórðu þáttaröð sjónvarpsþáttanna Silo og framhald teiknimyndarinnar Lói, þú flýgur aldrei einn var hljóðrituð í Hofi um helgina. SinfoniaNord sinnti þar tveimur alþjóðlegum verkefnum á þremur dögum. Föstudaginn 6. nóvember tók hljómsveitin upp tónlist eftir Atla Örvarsson fyrir fjórðu og síðustu þáttaröð Silo. Þessir vinsælu vísindaskáldsöguþættir Apple TV skarta Rebeccu Ferguson í aðalhlutverki

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

27 Oct 2026
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi

Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.

Secret Link