Til baka
5 Sep 2017

HÚN PABBI 9.-10. SEPTEMBER

Hún pabbi er einlægur einleikur um óvanalegt samband föður og sonar. Hún pabbi er gestasýning LA og er sýnt í Samkomuhúsinu um næstu helgi og verða aðeins tvær sýningar 9. og 10. september.  

“Innst inni vissi Hannes að eitthvað var ekki eins og það átti að vera. Dag einn breyttist allt. Pabbi hans lét sig einfaldlega hverfa og varð Anna Margrét Grétarsdóttir, þá 57 ára gömul.” 

Hannes Óli Ágústsson leikari upplifði aldrei nánd við föður sinn. Í æsku öfundaði hann leikfélagana af sambandi þeirra við feður sína. Hannes vildi bara „venjulegan pabba” en faðir hans var fjarlægur þrátt fyrir að vera til staðar. Innst inni vissi Hannes að eitthvað var ekki eins og það átti að vera. Dag einn breyttist allt. Pabbi hans lét sig einfaldlega hverfa og varð Anna Margrét Grétarsdóttir, þá 57 ára gömul. Hún tilkynnti eiginkonu sinni til 30 ára og börnum sínum tveimur að hún væri í raun ekki sá sem þau héldu öll þessi ár. Hún var ekki Ágúst Már, heldur Anna Margrét. 

 Úr dómum

„Afhjúpandi sýning sem er í senn sorgleg, hjartnæm og bráðfyndin”  SJ, Fréttablaðið

„Ótrúlega falleg” – BL Kastljós

„Hvað eftir annað grípur maður beinlínis andann á lofti frammi fyrir kúnst lýsingarinnar”  – MK Víðsjá

„Boðskapur sýningarinnar er bæði skýr og fallegur, þorum að standa með sjálfum okkur og vera sú manneskja sem við erum”  – SBH Mbl.

 

 

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

9 Nov 2026
Stór upptökuhelgi að baki hjá SinfoniaNord

Tónlist fyrir fjórðu þáttaröð sjónvarpsþáttanna Silo og framhald teiknimyndarinnar Lói, þú flýgur aldrei einn var hljóðrituð í Hofi um helgina. SinfoniaNord sinnti þar tveimur alþjóðlegum verkefnum á þremur dögum. Föstudaginn 6. nóvember tók hljómsveitin upp tónlist eftir Atla Örvarsson fyrir fjórðu og síðustu þáttaröð Silo. Þessir vinsælu vísindaskáldsöguþættir Apple TV skarta Rebeccu Ferguson í aðalhlutverki

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

27 Oct 2026
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi

Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.

Secret Link