Þeir eru komnir aftur! Eftir að hafa farið á hundavaði um sögu íslensku þjóðarinnar í þremur brakandi skemmtilegum sýningum – Sögu þjóðar, Öldinni okkar og Kvenfólki – snýr hinn óviðjafnanlegi dúett Hundur í óskilum aftur og ræðst á einn af hornsteinum íslenskrar menningar – sjálfa Njálu.Drepfyndin sýning þar sem þeir Hjörleifur Hjartarson og Eiríkur Stephensen hlaupa meira en hæð sína í öllum herklæðum í gegnum skrautlegt persónugallerí Njálu. Við sögu koma taðskegglingar, hornkerlingar, kinnhestar, kartneglur og þjófsaugu svo fátt eitt sé nefnt.
Leikarar: Eiríkur Stephensen og Hjörleifur Hjartarson
Höfundur: Hjörleifur HjartarsonLeikstjórn: Ágústa SkúladóttirTónlist: Eiríkur Stephensen og Hjörleifur HjartarsonLeikmynd og búningar: Þórunn María JónsdóttirLýsing: Ingi BekkHljóð: Þorbjörn SteingrímssonLeikgervi: Elín S. Gísladóttir og Þórunn María Jónsdóttir.


