Til baka
22 Feb 2011

Hvað ef?

Hvað Ef? Skemmtifræðsla, er uppistand fyrir unglinga, foreldra og kennara um mörg þau málefni og freistingar sem ungt fólk stendur frammi fyrir á hverjum degi. Hvað Ef? fjallar um viðkvæm mál eins og vímuefni, áfengi, kynferðisofbeldi, ölvunarakstur, einelti og foreldravandamál á skemmtilegan og nýstárlegan hátt.

Flytjendur eru þau Guðmundur Ingi Þorvaldsson, Ólöf Jara Skagfjörð og Ævar Þór Benediktsson. Leikstjóri er Gunnar Sigurðsson.

Kvöldsýningar fyrir foreldra og aðra áhugasamaSérstakar sýningar kl. 20.00 báða dagana fyrir foreldra og aðra sem áhuga hafa. Geta foreldrar eða félög haft samband við Grétu Kristjánsdóttur gretak@akureyri.is eða Eyrúnu Rafnsdóttur eyrun@dalvik.is til að fá nánari upplýsingar.

Íslandsbanki á Akureyri hefur ákveðið að bjóða 9. og 10. bekkjum grunnskóla á Akureyri og í nærsveitum að koma og sjá sýninguna. Allir velkomnir og enginn aðgangseyrir.

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

17 Nov 2026
Jólailmur í Hofi á sunnudaginn!

Sunnudaginn 22. nóvember mun árlega hönnunar- og handverkshátíðin Jólailmur fara fram í Menningarhúsinu Hofi frá kl. 12-19. Hátíðin hefur fest sig í sessi undanfarin ár og notið mikilla vinsælda meðal bæjarbúa og gesta. Yfir 30 þátttakendur taka þátt í hátíðinni í ár og verður boðið upp á fjölbreytt úrval af fallegri hönnun, handverki og ljúffengum

9 Nov 2026
Stór upptökuhelgi að baki hjá SinfoniaNord

Tónlist fyrir fjórðu þáttaröð sjónvarpsþáttanna Silo og framhald teiknimyndarinnar Lói, þú flýgur aldrei einn var hljóðrituð í Hofi um helgina. SinfoniaNord sinnti þar tveimur alþjóðlegum verkefnum á þremur dögum. Föstudaginn 6. nóvember tók hljómsveitin upp tónlist eftir Atla Örvarsson fyrir fjórðu og síðustu þáttaröð Silo. Þessir vinsælu vísindaskáldsöguþættir Apple TV skarta Rebeccu Ferguson í aðalhlutverki

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

Secret Link