Í MINNINGU VILHJÁLMS VILHJÁLMSSONAR
Friðrik Ómar stóð fyrir uppsetningu þessa tónleika í Salnum í Kópavogi í lok mars 2008. Alls voru haldnir sex tónleikar en hætta þurfti fyrir fullu húsi þar sem Friðrik var í fullum undirbúningi fyrir þátttöku sína í Söngvakeppni Evrópskra Sjónvarpsstöðva það árið. Tónleikarnir voru hljóðritaðir og gefnir út á geisladisk sama ár. Nú tveimur árum síðar hefur var ákveðið að flytja sömu dagskrá í nýju og glæsilegu menningarhúsi Akureyringa, Hofi. Flutt verða öll vinsælustu lög Vilhjálms af glæsilegu listafólki en kynnir og sögumaður verður Ómar Ragnarsson, vinur Vilhjálms.
Ásamt Friðriki kemur fram hljómsveit sem skipuð er eftirtöldum:
Gulli Briem – trommur Halldór G. Hauksson – slagverk Jóhann Ásmundsson – bassi Pétur Valgarð Pétursson – gítar Kristján Grétarsson – gítar Kjartan Valdemarsson – píanó Þórir Úlfarsson – hljómborð Greta Salóme – fiðla Alma Rut – raddir Erna Hrönn – raddir Regína Ósk – raddir
Guðrún Gunnarsdóttir – gestasöngkona


