Til baka
28 Apr 2025

Í tilefni af 100 ára fæðingarafmæli Jóns Nordal tónskálds flytur Sinfóníuhljómsveit Norðurlands Óttusöngva að vori.

Tónskáldið Jón Nordal fæddist þann 6. mars 1926 og því verða 100 ár liðin frá fæðingu hans í mars á næsta ári. Af því tilefni mun Sinfóníuhljómsveit Norðurlands halda tónleika honum til heiðurs í Hofi þann 8. mars næstkomandi. Flutt verða tvær af perlum Jóns, Óttusöngvar að vori fyrir tvo einsöngvara, kór og sinfóníuhljómsveit og Konsert fyrir selló og hljómsveit.  Á sömu tónleikum verða frumflutt verk eftir Daníel Þorsteinsson sem útnefndur var bæjarlistamaður á Akureyri árið 2000. Jón Nordal er eitt merkasta og eftirtektaverðasta tónskáld íslandssögunnar og vakti ungur athygli. Hann var t.a.m. aðeins 19 ára þegar fiðluverkið „Systurnar í Garðshorni“, var flutt á listamannaþinginu 1945.

Stjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands á þessum tónleikum verður Bjarni Frímann Bjarnason, einsöngvari verður Harpa Ósk Björnsdóttir og einleikari á selló verður Steinunn Arnbjörg Stefánsdóttir. Fram koma kórarnir Hljómeyki og Kór Akureyrarkirkju.

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

27 Oct 2026
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi

Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.

15 Oct 2026
Menningarfélag Akureyrar hlýtur viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026

Menningarfélag Akureyrar hefur hlotið viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026 fyrir að hafa náð markmiði um kynjajafnvægi í efsta stjórnendalagi. Þetta er ekki einungis áfangi heldur staðfesting á þeirri vegferð sem stjórnendur Menningarfélagsins hafa verið á, sem er að skapa vinnustað þar sem allir hafa jöfn tækifæri til að vaxa, leiða og hafa áhrif. Jafnvægisvogin er hreyfiaflsverkefni á

Secret Link