Til baka
29 Jun 2021

Ingibjörg Elsa Turchi í Hofi

Bassaleikarinn og tónskáldið Ingibjörg Elsa Turchi heldur tónleika ásamt hljómsveit í Hömrum í Hofi laugardaginn 3. júlí. 

Ingibjörg Elsa Turchi hefur verið afar sýnileg í íslensku tónlistarlífi síðustu ár og hefur komið fram með mörgum af ástsælustu listamönnum þjóðarinnar, svo sem Emilíönu Torrini, Bubba Morthens, Teiti Magnússyni og Stuðmönnum svo fátt eitt sé nefnt. Einnig hefur hún samið verk fyrir Sinfóníuhljómsveit Íslands en það var frumflutt í apríl 2021 á vegum Ung-Yrkju verkefnis SÍ og Tónverkamiðstöðvar.

Ingibjörg gaf út stuttskífuna Wood/Work árið 2017 þar sem bassinn var í aðalhlutverki. Í júlí 2020 gaf Ingibjörg svo út sína fyrstu plötu í fullri lengd, Meliae, og hélt áfram að víkka út hljóðheim sinn með hjálp hljómsveitar sinnar. Á plötunni ægir saman djassi, tilraunamennsku og naumhyggju í ómþýðri blöndu. Endurtekningar eru í fyrirrúmi. Hljóðfæri á borð við saxófón, gítar og bassa eru afbyggð með hjálp raftækja og síðan byggð upp aftur. Þannig skapa Ingibjörg og félagar einstakan og dáleiðandi hljóðheim þar sem hið kunnuglega verður framandi á ný. Árið 2020 hlaut platan Meliae Kraumsverðlaunin, var valin plata ársins af Morgunblaðinu og straum.is og fékk 5 stjörnur í gagnrýni Morgunblaðsins. Á Íslensku tónlistarverðlaununum 2021 hlaut Ingibjörg sex tilnefningar og hlaut tvenn verðlaun, annars vegar fyrir plötu ársins í flokki Djass-og blústónlistar og fyrir Upptökustjórn í Opnum flokki.

Á fyrirhuguðum tónleikum munu Ingibjörg og hljómsveit leika verk af plötunni Meliae, ásamt nýju efni af plötu sem er í bígerð í bland við spuna.Fram koma: Ingibjörg Elsa Turchi – Rafbassi Tumi Árnason – Saxófónn Magnús Trygvason Eliassen – Trommur Hróðmar Sigurðsson – Gítar

Miðasala í fullum gangi á mak.is. 

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

9 Nov 2026
Stór upptökuhelgi að baki hjá SinfoniaNord

Tónlist fyrir fjórðu þáttaröð sjónvarpsþáttanna Silo og framhald teiknimyndarinnar Lói, þú flýgur aldrei einn var hljóðrituð í Hofi um helgina. SinfoniaNord sinnti þar tveimur alþjóðlegum verkefnum á þremur dögum. Föstudaginn 6. nóvember tók hljómsveitin upp tónlist eftir Atla Örvarsson fyrir fjórðu og síðustu þáttaröð Silo. Þessir vinsælu vísindaskáldsöguþættir Apple TV skarta Rebeccu Ferguson í aðalhlutverki

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

27 Oct 2026
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi

Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.

Secret Link