Til baka
23 Jul 2010

Íslensk hönnun í Hofi

Reynir Sýrusson, hönnuður er höfundur húsgagnanna. Við hönnunina hafði hann að leiðarljósi að hlutirnir féllu vel að umhverfinu, en væru jafnframt sjálfstæðir og  gætu notið sín þannig. Hann segir að finna megi ákveðna tengingu á milli sumra húsgagnanna og hússins. Sem dæmi nefnir Reynir kaffiborðin og standborðin; á hvoru tveggja eru þrír fætur með óreglulegu millibili. Hugsunin á bak við það var að það myndi kallast á við stuðlabergið sem einkennir Hof, meðal annars klæðningu þess að utan. Reynir stendur á bak við hönnunarfyrirtækið Syrusson sem hann stofnaði fyrir tíu árum. Það hefur getið sér afar gott orð hér á landi fyrir vandaða og frumlega hönnun húsgagna. Á meðal annarra verkefna sem Reynir hefur tekið að sér og fólu í sér heildstæða hönnun fyrir viðskiptavininn líkt og í tilviki Hofs má nefna CCP, Guðríðarkirkju, Hellisheiðarvirkjun, Matís og skrifstofur Kennarasambands Íslands.

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

9 Nov 2026
Stór upptökuhelgi að baki hjá SinfoniaNord

Tónlist fyrir fjórðu þáttaröð sjónvarpsþáttanna Silo og framhald teiknimyndarinnar Lói, þú flýgur aldrei einn var hljóðrituð í Hofi um helgina. SinfoniaNord sinnti þar tveimur alþjóðlegum verkefnum á þremur dögum. Föstudaginn 6. nóvember tók hljómsveitin upp tónlist eftir Atla Örvarsson fyrir fjórðu og síðustu þáttaröð Silo. Þessir vinsælu vísindaskáldsöguþættir Apple TV skarta Rebeccu Ferguson í aðalhlutverki

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

27 Oct 2026
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi

Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.

Secret Link