Til baka
23 Mar 2011

Íslenski dansflokkurinn kemur í Hof – fjölskyldusýning og frítt dansnámskeið

Fjölskyldusýning í Hofi: Á dagskránni verða tvö ólík verk sem bæði höfða til breiðs áhorfendahóps.

Fyrra verkið sem sýnt verður ber nafnið Groβstadtsafari og er eftir Norðmanninn Jo Strömgren en verk eftir hann hafa verið sýnd í yfir 50 löndum. Verkið var frumsýnt þann 4. mars síðastliðinn og fékk frábærar viðtökur hjá áhorfendum sem og gagnrýnendum. Groβstadtsafari fjallar um þá streitu og öngþveiti sem byggist upp í fjölmenni borgarlífsins. Þetta er kröftugt dansverk sem gerir miklar tæknilegar kröfur til dansaranna.  Bryndís Schram á pressan.is sagði meðal annars í sínum dómi: „Verkið var geggjað flott og vitnaði enn um samstillingu og tæknilega yfirburði flokksins“ og bætti svo við „flott show –svolítið í anda söngleikjanna – en þó öllu dramatískara“.

Seinna verkið er af allt öðrum toga. Það heitir Endastöð og er eftir Svíann Alexander Ekman en hann er einn af virtustu og vinsælustu danshöfundunum í Evrópu í dag. Íslenski dansflokkurinn frumsýndi Endastöð árið 2008 og hefur sýnt verkið víða um heim. Í Endastöð fer saman látbragð og dans er við fylgjumst með hópi gamalmenna í leit þeirra að æskunni. Verkið er leikrænt, létt, fyndið og rómantískt. Gagnrýnandi Morgunblaðsins sagði um verkið: „Endastöð er staðfastlega fyndið út í gegn“ og franskur gagnrýnandi taldi lokaatriði verksins vera „gulls ígildi“.

Miðasala er í síma 450 1000 eða midasala@menningarhus.is.

Dansnámskeið

Íslenski dansflokkurinn mun einnig bjóða upp á frítt dansnámskeið fyrir ungt fólk á Akureyri og nágrenni.  Krökkum í 8. til 10. bekk verður boðið á stutt og skemmtilegt námskeið þar sem þeim gefst tækifæri til að kynnast nútímadansi  frá eigin hendi. Námskeiðið er hannað þannig að allir geta tekið þátt og eru krakkar sem ekki hafa stundað dans áður sérstaklega hvattir til að koma og spreyta sig.

Námskeiðið verður haldið föstudaginn 1. apríl í Hofi og er kennt af dönsurum úr Íslenska dansflokknum. Þeir sem hafa áhuga að taka þátt sendi tölvupóst með nafni og aldri á id@id.is. Nánari upplýsingar má finna á vef dansflokksins, http://www.id.is/ eða í síma 568 8000.

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

9 Nov 2026
Stór upptökuhelgi að baki hjá SinfoniaNord

Tónlist fyrir fjórðu þáttaröð sjónvarpsþáttanna Silo og framhald teiknimyndarinnar Lói, þú flýgur aldrei einn var hljóðrituð í Hofi um helgina. SinfoniaNord sinnti þar tveimur alþjóðlegum verkefnum á þremur dögum. Föstudaginn 6. nóvember tók hljómsveitin upp tónlist eftir Atla Örvarsson fyrir fjórðu og síðustu þáttaröð Silo. Þessir vinsælu vísindaskáldsöguþættir Apple TV skarta Rebeccu Ferguson í aðalhlutverki

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

27 Oct 2026
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi

Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.

Secret Link