Til baka
7 Sep 2020

Jaan Alavere látinn

Stórt skarð hefur verið höggvið í raðir listamanna og starfsfólks Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands og verkefnisins SinfoniaNord. Jaan Alavere er látinn langt fyrir aldur fram. Slíkt skarð verður ekki auðfyllt því hæfileikar Jaans voru svo víðfeðmir og sérstakir. Hann valdist til að verða konsertmeistari tveggja sinfóníuhljómsveita á lífsleiðinni. Hann var tónskáld, hann var atvinnuorganisti, hann lék á harmónikku og gítar. Hann spilaði sígilda tónlist, jazz, popp, rokk og þjóðlagatónlist. En helst vildi hann þjóna leikhúsinu, það vita allir sem unnu með honum í Kabarett. Gallsteinum Afa Gissa og Vorið Vaknar. Þar lék hann á ýmis hljóðfæri af mikilli alúð og list. Hann var alltaf mættur fyrstur allra að hita sig upp, fegra rýmið eða aðstoða leikarana við eigin upphitun. Þarna var Jaan í essinu sínu. Sem betur fer hafði hann lokið við að semja söngleik stuttu áður en hann dó. Við hjá Menningarfélagi Akureyrar og SN sendum fjölskyldu Jaans , Mariku, Marít, Marge og Gretu djúpar samúðarkveðjur.

Fyrir hönd SN

Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

9 Nov 2026
Stór upptökuhelgi að baki hjá SinfoniaNord

Tónlist fyrir fjórðu þáttaröð sjónvarpsþáttanna Silo og framhald teiknimyndarinnar Lói, þú flýgur aldrei einn var hljóðrituð í Hofi um helgina. SinfoniaNord sinnti þar tveimur alþjóðlegum verkefnum á þremur dögum. Föstudaginn 6. nóvember tók hljómsveitin upp tónlist eftir Atla Örvarsson fyrir fjórðu og síðustu þáttaröð Silo. Þessir vinsælu vísindaskáldsöguþættir Apple TV skarta Rebeccu Ferguson í aðalhlutverki

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

27 Oct 2026
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi

Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.

Secret Link