Hvernig tengjumst við steinum, landi og þeim andlega veruleika sem við deilum með náttúrunni? Japanski listahópurinn Yubusha leitar svara við þeirri spurningu í nýju verki sem verður hluti af alþjóðlegu gjörningahátíðinni A! á Akureyri.
Yubusha vinnur nú að rannsókn og nýjum gjörningi á Íslandi þar sem hópurinn kannar með líkamanum hvernig fólk upplifir og myndar tengsl við land, steina og andlega heima. Verkefnið leiðir saman japanska hefð, íslenska þjóðtrú og Butoh-dans og verður til í nánu samtali við landslag og sögur á Akureyri og í nágrenni.
Í verkefninu ber Yubusha saman annars vegar japanska hefð sem nefnist Sōmokutō, þar sem minnisvarðar eru reistir fyrir plöntur og önnur lifandi náttúrufyrirbæri, og hins vegar íslenska þjóðtrú um anda og huldufólk og tengsl þeirra við steina og landslag.
Í miðju verkefnisins er hugmyndin um „ritúal líkama“. Þar er sjónum beint að því hvernig trú, minningar og tengsl mannsins við náttúruna birtast ekki aðeins sem hugmyndir heldur einnig í líkamlegri upplifun. Með Butoh-dansi rannsakar Yubusha mörk lífs, dauða og tilvistar og notar líkamann sem verkfæri til að skynja og miðla þessum tengslum.
Gjörningurinn er hluti af áframhaldandi listrænni rannsókn Yubusha þar sem listsköpun og rannsókn renna saman. Hópurinn hefur áður skapað verkið Shokei: Summer, Sōmokutō, sem fjallar um hverfulleika lífsins og sorg í tengslum við náttúruna. Á Íslandi heldur rannsóknin áfram með vettvangsvinnu þar sem land, steinar, sögur og þjóðtrú verða efniviður í nýtt verk.
Með gjörningnum skapast þannig óvenjulegt samtal milli Japans og Íslands, þar sem ólíkar hefðir mætast í líkamanum og landslaginu.
Viðburðurinn fer fram í Hömrum kl. 15:00. Viðburðurinn er um 25. mínútur að lengd.
Hér getur þú séð nánar um viðburðinn.
Akureyri verður suðupottur gjörningalistar
Gjörningur Yubusha er hluti af A! alþjóðlegri gjörningahátíð, sem haldin er á Akureyri í tólfta sinn. Hátíðin stendur yfir í fjóra daga og hefur skapað sér sérstakan sess í íslensku menningarlífi sem ein fárra hátíða hér á landi sem einbeitir sér að gjörningalist.
Á dagskránni eru fjölbreyttir gjörningar og leikhústengd verk eftir unga og upprennandi listamenn jafnt sem reynda gjörninga-, dans- og leikhúslistamenn frá Íslandi og öðrum löndum. Á meðan hátíðinni stendur verða menningarhús Akureyrar vettvangur ólíkra verka þar sem mörk myndlistar, dans, leikhúss og gjörningalistar mætast.
Hér getur þú séð dagskrá hátíðarinnar.


