Til baka
29 Nov 2022

Jólatónleikarnir eiga sviðið í Hofi á aðventunni

Jólatónleikar eiga sviðið í Menningarhúsinu Hofi á aðventunni enda hluti af undirbúningu jóla hjá svo mörgum.

Söngkonan Jónína Björt Gunnarsdóttir ríður á vaðið föstudagskvöldið 2. desember með tónleikunum Jólaljós og lopasokkar. Um fyrstu jólatónleika Jónínu er að ræða en með sér hefur hún reynsluboltana Óskar Pétursson og Ívar Helgason. Kynnir verður hinn bráðskemmtilegi Vilhjálmur B. Bragason.

Kvöldið eftir, laugardagskvöldið 3. desember, er komið að stórsöngvaranum Valdimar Guðmundssyni, ásamt hljómsveit, til að halda stórtónleika í Hofi. Hljómsveitarstjóri er hinn geðekki Ómar Guðjónsson.

Sunnudaginn 4. desember vendum við okkar kvæði í kross og hleypum dansinum að þegar Steps Dancenter býður upp á sýninguna Kósý í desember. Dansarar frá tveggja ára aldri fylla sviðið í Hofi af dansgleði.

Helgina 9.-11.desember er komið að því sem margir hafa beðið eftir; árlegu jólatónleikunum, Heima um jólin. Friðrik Ómar og gestir halda fimm tónleika í Hofi frá föstudegi til sunnudags og búast má við stórkostlegri skemmtun í tali og tónum eins og honum einum er lagið.

Laugardaginn 17. desember ætlum við að kitla hláturstaugarnar með ógleymanlegri uppistandssýningu Ara Eldjárs: Áramótaskop. Ari er einn allra vinsælasti uppistandari þjóðarinnar og því ekki slæmt að fá að kveðja gamla árið með hlátrasköllum með sjálfum Ara Eldjárn í Hofi.

Tónlistarkonan  Bríet mun halda hátíðlega kósýtónleika sunnudagsskvöldið 18. desember. Þar mun Bríet, ásamt kærastanum sínum Rubin Pollock og besta vini hans Þorleifi Gauki, skapa einstaka kósý og vinalega stemningu. Bríet ætlar að taka sín þekktustu lög og bæta svo við nokkrum ljúfum jólalögum.

Kóngurinn sjálfur, Bubbi Morthens, stígur á svið Hamraborgar miðvikudagskvöldið 21. desember með árlegum Þorláksmessutónleikum sínum. Bubbi mætir með gítarinn og perlar sín þekktustu lög á kvöldsins festi og rýnir í samtímann af sinni einstöku snilld.

Svo má ekki gleyma gjafabréfunum á söngleikinn Chicago og Nýárstónleika Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands sem fást í Hofi. Tilvalin jólagjöf!

Miðasala á alla viðburðina fara fram á mak.is. Gleðilega aðventu!

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

9 Nov 2026
Stór upptökuhelgi að baki hjá SinfoniaNord

Tónlist fyrir fjórðu þáttaröð sjónvarpsþáttanna Silo og framhald teiknimyndarinnar Lói, þú flýgur aldrei einn var hljóðrituð í Hofi um helgina. SinfoniaNord sinnti þar tveimur alþjóðlegum verkefnum á þremur dögum. Föstudaginn 6. nóvember tók hljómsveitin upp tónlist eftir Atla Örvarsson fyrir fjórðu og síðustu þáttaröð Silo. Þessir vinsælu vísindaskáldsöguþættir Apple TV skarta Rebeccu Ferguson í aðalhlutverki

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

27 Oct 2026
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi

Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.

Secret Link