Til baka
21 Jun 2021

Jón Gnarr verður Skugga-Sveinn

Stórleikarinn Jón Gnarr verður í hlutverki Skugga-Sveins í uppsetningu Leikfélags Akureyrar á leikritinu.

Marta Nordal, leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar, mun leikstýra Skugga-Svein.

„Það er hreint út sagt stórkostlegt að fá náttúruaflið og listamanninn Jón Gnarr í hlutverk Skugga Sveins, eina frægustu persónu íslenskra leikbókmennta. Það eru svo sannarlega spennandi tímar framundan hjá LA og við getum ekki beðið eftir að hefja þetta ferðalag, kveikja í gömlum glæðum þessa verks og enduruppgötva það,“ segir Marta.

Leikritið Skugga-Sveinn eftir þjóðskáldið Matthías Jochumsson var fyrst sett á svið árið 1862. Áætluð frumsýning Leikfélags Akureyrar er um miðjan janúar 2022.

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

27 Oct 2026
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi

Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.

15 Oct 2026
Menningarfélag Akureyrar hlýtur viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026

Menningarfélag Akureyrar hefur hlotið viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026 fyrir að hafa náð markmiði um kynjajafnvægi í efsta stjórnendalagi. Þetta er ekki einungis áfangi heldur staðfesting á þeirri vegferð sem stjórnendur Menningarfélagsins hafa verið á, sem er að skapa vinnustað þar sem allir hafa jöfn tækifæri til að vaxa, leiða og hafa áhrif. Jafnvægisvogin er hreyfiaflsverkefni á

Secret Link