Sinfóníuhljómsveit Norðurlands heiðrar eitt áhrifamesta tónskáld Íslands, Jón Nordal, með sérstökum minningartónleikum laugardaginn 8. mars.
Þann 6. mars hefði Jón orðið 100 ára ef hann hefði lifað og eru tónleikarnir því einnig tilefni til að fagna 100 ára fæðingarafmæli listamannsins.
Á efnisskránni eru tvö af áhrifamestu verkum hans: Óttusöngvar að vori(1993), fyrir sópran, selló, slagverk og kór og Konsert fyrir selló (1982), stórbrotið verk þar sem hlý rödd sellósins mætir krafti sinfóníuhljómsveitarinnar.
Einnig verður frumflutt verk eftir Daníel Þorsteinsson á tónleikunum en Daníel var útnefndur bæjarlistamaður á Akureyri árið 2000.
Heiðurstónleikar Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands þann 8. mars eru því ekki aðeins tónlistarviðburður, heldur minning um mann sem litaði tónlistarlífið á Íslandi með verkum sínum. Jón Nordal skildi eftir sig arfleifð sem heldur áfram að hljóma og hafa áhrif á nýja kynslóð tónskálda sem sækja innblástur í þá næmni sem einkenna verk hans.
Bjarni Frímann Bjarnason mun stjórna Sinfóníuhljómsveit Norðurlands á tónleikunum og einsöngur verður í höndum Herdísar Önnu Jónasdóttur, sópran og Hönnu Dóru Sturludóttur mezzo-sópran. Kórarnir Hljómeyki og Kór Akureyrarkirkju munu einnig fylla salarrými Hofs með söng sínum. Einleikari á selló er Steinunn Arnbjörg Stefánsdóttir.
Tryggðu þér sæti og vertu með í þessari einstöku heiðrun Jóns Nordal.
Jón Nordal í 100 ár, Heiðurstónleikar Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands 8. mars
Tengdar bloggfærslur
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi
Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi
Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.
Menningarfélag Akureyrar hlýtur viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026
Menningarfélag Akureyrar hefur hlotið viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026 fyrir að hafa náð markmiði um kynjajafnvægi í efsta stjórnendalagi. Þetta er ekki einungis áfangi heldur staðfesting á þeirri vegferð sem stjórnendur Menningarfélagsins hafa verið á, sem er að skapa vinnustað þar sem allir hafa jöfn tækifæri til að vaxa, leiða og hafa áhrif. Jafnvægisvogin er hreyfiaflsverkefni á


