Það verður mikið um dýrðir þegar Jónas Sig ásamt hljómsveit gengur til liðs við hina sönnu kvikmyndahljómsveit Íslands, Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, í Hofi þann 18 september 2021.
Forsölutilboð á tónleikana gildir til 5. júlí! Tryggðu þér miða strax á mak.is!
Tónskáldið og hljómsveitarstjórinn Þórður Magnússon hefur unnið með Jónasi og hljómsveit hans að sinfónískum útsetningum af vel völdum perlum Jónasar auk nýs efnis og verður afraksturinn hljóðritaður til útgáfu á þessum spennandi tónleikum. Komdu og upplifðu hljómleikaplötu í smíðum í Hofi og láttu ljós þitt skína á milli laga.
Jónas Sig: Söngur – gítar
Ómar Guðjónsson – gítar
Guðni Finnsson – bassi
Tómas Jónsson – hljómborð
Arnar Þór Gíslason – trommur
Greta Salóme – fiðla og bakraddir
Eyþór Ingi Gunnlaugsson – gítar og bakraddir


