Til baka
18 Oct 2023

Jonna opnar Hlýnun í Hofi á laugardaginn

Jonna Jónborg Sigurðardóttir (f.1966) opnar sýningu sína Hlýnun í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri laugardaginn 21. október kl. 15.

Jonna notar myndlist sína til að vekja athygli á samfélagslegum þàttum. Verkin á sýningunni eru óhefðbundinn textílverk sem vísa í ruglið og bullið í neyslu okkar og það sem er að gerast í heiminum. Hamfara hlýnun, bràðnun jökla og fleira. Þar eru líka Skólphreinsistöðvar og móðursýki.

„Verk mín eru öll unnin úr endurvinnslu efnum. Ég nota lopa og garnafganga sem ég hef tekið við frá öðrum og margt sem annars hefði endað í ruslinu, ég geng svo langt að tvinna saman stutta spotta og nýti allt. Stæðsti partur af efnivið mínum er mikið magn af mjög vel prjónuðum bútum sem íbúi á Hlíð, Herborg Kàradóttir prjónaði, en hún þjàðist af Alzheimer og lést 2021. Mér þykir vænt um að fá að nota handverk hennar og gera það að mínu. Að lokum hvet ég fólk til að hugsa um neyslu sína, maður byrjar á sjàlfum sér,“ segir Jonna.

Jonna útskrifaðist úr màlunardeild Myndlistarskólans á Akureyri 1995 og úr fatahönnun frá København Mode og Design skolen 2011. Hún hefur haldið fjölda einkasýninga og verið virk í myndlistar lífi à Akureyri. Jonna à verk í opinberri eigu. Hún er meðlimur í SÍM, Myndlistarfélagi Akureyrar og Gilfélaginu.

Öll velkomin á opnunina.

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

9 Nov 2026
Stór upptökuhelgi að baki hjá SinfoniaNord

Tónlist fyrir fjórðu þáttaröð sjónvarpsþáttanna Silo og framhald teiknimyndarinnar Lói, þú flýgur aldrei einn var hljóðrituð í Hofi um helgina. SinfoniaNord sinnti þar tveimur alþjóðlegum verkefnum á þremur dögum. Föstudaginn 6. nóvember tók hljómsveitin upp tónlist eftir Atla Örvarsson fyrir fjórðu og síðustu þáttaröð Silo. Þessir vinsælu vísindaskáldsöguþættir Apple TV skarta Rebeccu Ferguson í aðalhlutverki

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

27 Oct 2026
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi

Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.

Secret Link