Til baka
2 Mar 2021

Joris Rademaker opnar sýningu í Hofi

Myndlistarmaðurinn Joris Rademaker opnar myndlistarsýningu sína Leiðir í Menningarhúsinu Hofi laugardaginn 6. mars kl. 14.

Joris lauk kennaranámi í Tilburg í Hollandi árið 1983 og myndlistarnámi í AKI, Enschede, Hollandi árið 1986. Hann hefur haldið sýningar á ýmsum stöðum á Íslandi eins og í Listasafni Akureyrar, Nýlistasafninu í Reykjavík, Gallerí Skugga, Safnasafninu á Svalbarðsströnd, Grafíksalnum, Safnahúsinu á Húsavík, Mjólkurbúðinni og Pálshúsi á Ólafsfirði. Eins hélt hann einkasýningar í Studiogalerie í Berlín og Den Bosch í Hollandi og samsýninguna From Iceland í Schijndel í Hollandi.

Joris var valinn Bæjarlistamaður Akureyrar árið 2006 og hlaut starfslaun myndlistarmanna árið 2014.

Joris segir setninguna „lost in space“ hafa fylgt honum í listsköpuninni:

„Flest mín verk fjalla um rými, orku og tímann, sem við notum til að finna leiðir til að upplifa einhvern tilgang. Náttúran er minn helsti innblástur og abstrakt myndlist er aðferðin til að gera orkuna og hreyfingu í náttúrunni sýnilega.“

Hann segir verkin í Hofi mega skipta í tvo hópa. „Hvítu akrýlmálverkin eru eldri, en helmingur þeirra eru nýlega kláruð og í þeim fær mynduppbyggingin mesta athygli. Svörtu gvass myndirnar eru nýjar og fjalla um birtu úr myrkrinu, þar sem hringlaga form dúkkar upp.“

Eins og áður segir opnar sýningin klukkan 14 í Menningarhúsinu Hofi og eru allir velkomnir á sýninguna. Sýningin stendur til 11. apríl.

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

27 Oct 2026
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi

Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.

15 Oct 2026
Menningarfélag Akureyrar hlýtur viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026

Menningarfélag Akureyrar hefur hlotið viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026 fyrir að hafa náð markmiði um kynjajafnvægi í efsta stjórnendalagi. Þetta er ekki einungis áfangi heldur staðfesting á þeirri vegferð sem stjórnendur Menningarfélagsins hafa verið á, sem er að skapa vinnustað þar sem allir hafa jöfn tækifæri til að vaxa, leiða og hafa áhrif. Jafnvægisvogin er hreyfiaflsverkefni á

Secret Link