Til baka
12 Nov 2019

Júlí Heiðar er Melchoir

Leikarinn Júlí Heiðar Halldórsson leikur Melchior í verðlaunasöngleiknum Vorið vaknar sem Leikfélag Akureyrar setur upp í janúar.

Júlí Heiðar útskrifaðist sem leikari frá Listaháskóla Íslands árið 2018. Hann lék til að mynda í kvikmyndinni Webcam, hefur tekið þátt í Söngvakeppninni, í uppfærslum Borgar- og Þjóðleikhússins og sér auk þess um fræðsluþættina KLINK sem sýndir eru á Rúv Núll. Þættirnir fjalla um fjármál og eru ætlaðir ungu fólki.

Júlí Heiðar er spenntur að koma til Akureyrar og leika í Samkomuhúsinu. „Það er geggjað að vera kominn norður. Ég hef alltaf kunnað vel við mig á Akureyri og hlakka ég mikið til að búa hérna næstu mánuðina. Það er líka æðislegt að fá að koma fram hjá Leikfélagi Akureyrar í frábæru verki með öllu þessu hæfileikaríka samstarfsfólki,“ segir Júlí Heiðar.

Vorið vaknar fjallar um afturhaldssamt og þröngsýnt samfélag 19. aldar. Vinunum Melchior, Moritz og Wendlu gengur misvel að fóta sig í harðneskjulegum heimi fullorðna fólksins og verða ýmist fórnarlömb eða sigurvegarar. Vorið vaknar fjallar um fyrstu kynlífsreynsluna, skólakerfið, kvíða og frelsisþrá þar sem tilfinningum krakkanna er fundinn farvegur í melódískri rokktónlist sem endurspeglar þeirra innra líf. 

Uppfærsla söngleiksins á Broadway árið 2006 hlaut átta Tony verðlaun og þar á meðal sem besti nýi söngleikurinn. Uppsetningin vann þar að auki fjölda annarra verðlauna og tilnefninga og hefur farið sigurför um heiminn allar götur síðan. Vorið vaknar er nú sett upp í fyrsta sinn í atvinnuleikhúsi á Íslandi. Aðrir leikarar eru Ahd Tamini, Ari Orrason, Árni Beinteinn Árnason, Bjarklind Ásta Brynjólfsdóttir, Edda Björg Eyjólfsdóttir, Eik Haraldsdóttir, Jónína Björt Gunnarsdóttir, Rúnar Kristinn Rúnarsson, Viktoría Sigurðardóttir, Þorsteinn Bachmann og Þórdís Björk Þorfinnsdóttir. Marta Nordal leikstýrir.

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

27 Oct 2026
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi

Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.

15 Oct 2026
Menningarfélag Akureyrar hlýtur viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026

Menningarfélag Akureyrar hefur hlotið viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026 fyrir að hafa náð markmiði um kynjajafnvægi í efsta stjórnendalagi. Þetta er ekki einungis áfangi heldur staðfesting á þeirri vegferð sem stjórnendur Menningarfélagsins hafa verið á, sem er að skapa vinnustað þar sem allir hafa jöfn tækifæri til að vaxa, leiða og hafa áhrif. Jafnvægisvogin er hreyfiaflsverkefni á

Secret Link