Til baka
27 Apr 2010

Kóramót verður haldið í Menningarhúsinu Hofi

Til mótsins  hefur á milli 20-30 kórum af öllum stærðum og gerðum verið boðið.  Hugmyndin að kóramótinu er að gefa sem flestum kórum af svæðinu tækifæri til að reyna nýja 500 manna salinn, Hamraborg, til að fagna þessum vettvangi sem þar hefur skapast fyrir tónleikahald.  Skemmst er frá því að segja að boðinu hefur verið mjög vel  tekið og enn hefur engin kór neitað sem óneitanlega gleður okkur sem vinnum í opnun hússins mjög.

Nánari timasetningar á dagskránni ráðast af þátttöku en ef fram fer sem horfir verður dagskráin skipulögð frá morgni til kvölds og þá verður gaman í Hofi

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

9 Nov 2026
Stór upptökuhelgi að baki hjá SinfoniaNord

Tónlist fyrir fjórðu þáttaröð sjónvarpsþáttanna Silo og framhald teiknimyndarinnar Lói, þú flýgur aldrei einn var hljóðrituð í Hofi um helgina. SinfoniaNord sinnti þar tveimur alþjóðlegum verkefnum á þremur dögum. Föstudaginn 6. nóvember tók hljómsveitin upp tónlist eftir Atla Örvarsson fyrir fjórðu og síðustu þáttaröð Silo. Þessir vinsælu vísindaskáldsöguþættir Apple TV skarta Rebeccu Ferguson í aðalhlutverki

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

27 Oct 2026
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi

Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.

Secret Link