Leikfélag Akureyrar frumsýnir Fasteignamartröðina, bráðfyndið og beitt samtímaverk sem fjallarmeðal annars um húsnæðismarkaðinn og fáránleika hans. Leikritið segir frá Arnrúnu, ungri konuá þrítugsaldri sem stendur skyndilega frammi fyrir því að þurfa að finna sér nýtt heimili eftirsambandsslit. Hún ákveður að kaupa sína fyrstu íbúð en kemst fljótt að því að leiðin að eiginhúsnæði er allt annað en greiðfær. Við tekur grátbroslegt ferðalag um frumskóg fasteignasala, bankastarfsmanna, lánardrottna og óraunhæfra væntinga. Verkið er sprenghlægileg en um leiðbeitt samfélagsádeila þar sem spurt er hvers vegna það sem ætti að vera ein af grunnþörfummannsins, að eiga sér heimili, er orðið að flóknu og jafnvel óyfirstíganlegu verkefni.
Enn eru lausir miðar á frumsýninguna föstudagskvöldið 9. október og á sérstaka sýningusunnudaginn 11. október þegar Gabrielė Labanauskaitė, höfundur verksins, mætir til Akureyrarog áhorfendum gefst færi á að ræða við höfundinn um tilurð verksins, samfélagslegar áherslurþess og þá stöðu sem ungt fólk stendur frammi fyrir á húsnæðismarkaði. Fasteignamartröðinhefur vakið athygli utan heimalands höfundarins og var meðal annars valin besta erlenda leikritiðá stærstu leikritunarhátíð Þýskalands árið 2023. Þótt sagan eigi rætur sínar í Litháen eru aðstæðurpersónanna kunnuglegar íslenskum áhorfendum, þar sem húsnæðisverð, lánskjör og baráttan um eigið húsnæði hafa verið fyrirferðarmikil í samfélagsumræðunni.
Leikstjórn og þýðing eru í höndum Adolfs Smára Unnarssonar og með hlutverk Arnrúnar fer Urður Bergsdóttir. Með henni á sviðinu eru Hjalti Rúnar Jónsson, Hólmfríður Hafliðadóttir, Jökull Smári Jakobsson og Vigdís Halla Birgisdóttir.Miðaverð er 7.900 krónur og miðasala fer fram á menningarfelag.is.


