Til baka
30 Apr 2021

La Traviata eftir Verdi í Hofi

Það eru gleðifréttir fyrir marga óperuunnendur að óperan La Traviata eftir Verdi verður sýnd í Menningarhúsinu Hofi 13. nóvember 2021. Óperan hætti fyrir fullu húsi vorið 2019 verður tekin upp og sýnd aftur í Eldborg í haust og í Hofi helgina eftir.

Samkvæmt Þorvaldi Bjarna Þorvaldssyni tónlistarstjóra Menningarfélags Akureyrar er þetta í fyrsta sinn sem óperusýning er flutt í Hofi.

„Hof er alvöru nútíma sviðslistahús og fullkomið fyrir flutning á óperum, ballet, söngleikjum og tónleikum af öllum stærðum og gerðum. Og í nóvember verður þar óperulist í hæsta gæðaflokki,“ segir Þorvaldur Bjarni spenntur.

Aðalhlutverkið verður sem fyrr sungið af Herdísi Önnu Jónassdóttir sem fékk frábæra dóma og fékk Grímuverðlaunin sem söngvari ársins fyrir túlkun sína á hlutverki Víólettu.Óperan fékk frábærar viðtökur áhorfenda og gagnrýnenda innanlands og erlendis en hún fjallar um lífsgleðina, frelsið og forboðna ást og er í þremur þáttum. Óperan var frumflutt í Feneyjum 6. mars árið 1853 og textinn sem er eftir Francesco Maria Piave er byggður á leikgerð skáldsögunnar Kamelíufrúin eftir Alexandre Dumas. Óperan hét upphaflega Violetta eftir aðalpersónunni og þykir ein sú allra fallegasta sem samin hefur verið.

Þetta mun verða í fyrsta sinn sem Íslenska óperan og Menningarfélag Akureyrar stofna til formlegs samstarfs varðandi óperuuppfærslur. Sinfóníuhljómsveit Norðurlands mun sjá um hljómsveitarleik á öllum sýningunum undir stjórn Bjarna Frímanns Bjarnasonar tónlistarstjóra Íslensku óperunnar.

Miðasala er hafin á mak.is.

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

9 Nov 2026
Stór upptökuhelgi að baki hjá SinfoniaNord

Tónlist fyrir fjórðu þáttaröð sjónvarpsþáttanna Silo og framhald teiknimyndarinnar Lói, þú flýgur aldrei einn var hljóðrituð í Hofi um helgina. SinfoniaNord sinnti þar tveimur alþjóðlegum verkefnum á þremur dögum. Föstudaginn 6. nóvember tók hljómsveitin upp tónlist eftir Atla Örvarsson fyrir fjórðu og síðustu þáttaröð Silo. Þessir vinsælu vísindaskáldsöguþættir Apple TV skarta Rebeccu Ferguson í aðalhlutverki

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

27 Oct 2026
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi

Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.

Secret Link