Til baka
2 May 2024

Líf og fjör í Hofi um helgina

Það verður aldeilis líf og fjör í Menningarhúsinu Hofi um helgina!

Á laugardaginn verða tvennir tónleikar af ABBA sýningunni Waterloo. Árið 1974 sigraði ABBA í Eurovision með laginu Waterloo. Það var í raun raun upphafið af því sem koma skildi því á næstu árum hristu þau fram úr erminni hvern slagarann á fætur öðrum eins og: SOS, Mamma Mia, Money, Money, Money, Knowing Me, Knowing You, að ógleymdri perlunni Dancing Queen. Í tilefni þess að 50 ár eru liðin frá sigrinum í Eurovision munu öll þessi lög ásamt fjölda annarra laga ABBA verða flutt í Hofi af einvala liði íslenskra söngvara og tónlistarmanna. Fyrri sýningin er klukkan 17 og sú síðari klukkan 21. Enn eru einhverjir miðar lausir á mak.is. 

Á laugardaginn verður einnig opnuð myndlistarsýningin Forðabúr hjartans þar sem 43 félagar í Myndlistarfélaginu sýna saman. Sýningin opnar kl. 16 á laugardaginn. Öll velkomin. Sýningin stendur til 23. ágústs.

Á sunnudaginn fagnar DSA danslistskóli Akureyrar tíu ára afmæli með glæsilegri sýningu. Sýnt verður klukkan 12 og klukkan 14:30. Miðasala á mak.is

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

27 Oct 2026
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi

Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.

15 Oct 2026
Menningarfélag Akureyrar hlýtur viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026

Menningarfélag Akureyrar hefur hlotið viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026 fyrir að hafa náð markmiði um kynjajafnvægi í efsta stjórnendalagi. Þetta er ekki einungis áfangi heldur staðfesting á þeirri vegferð sem stjórnendur Menningarfélagsins hafa verið á, sem er að skapa vinnustað þar sem allir hafa jöfn tækifæri til að vaxa, leiða og hafa áhrif. Jafnvægisvogin er hreyfiaflsverkefni á

Secret Link