Til baka
5 Jan 2024

Líf og fjör í Samkomuhúsinu og Hofi

Árið byrjar heldur betur af krafti hjá Leikfélagi Akureyrar! Samkomuhúsið og Menningarhúsið Hofi iða af lífi því æfingar eru í fullum gangi í báðum húsum. Í Svarta kassanum í Hofi er verið að æfa barnaverkið Litla skrímslið og stóra skrímslið  sem verður frumsýnt laugardaginn 13. janúar. Með hlutverk skrímslanna fara Margrét Sverrisdóttir og Hjalti Rúnar Jónsson en leikstjóri er Jenný Lára Arnórsdóttir.

Í Samkomuhúsinu standa yfir æfingar á verkinu  And Björk, of course.. eftir Þorvald Þorsteinsson. Leikarar eru Jón Gnarr, Sverrir Þór Sverrisson, Eygló Hilmarsdóttir, Arna Magnea Danks, Davíð Þór Katrínarson, María Pálsdóttir og María Heba Þorkelsdóttir. Leikstjóri er Greta Kristín Ómarsdóttir. Verkið verður frumsýnt 23. febrúar.

Miðasala á bæði verkin er á mak.is

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

27 Oct 2026
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi

Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.

15 Oct 2026
Menningarfélag Akureyrar hlýtur viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026

Menningarfélag Akureyrar hefur hlotið viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026 fyrir að hafa náð markmiði um kynjajafnvægi í efsta stjórnendalagi. Þetta er ekki einungis áfangi heldur staðfesting á þeirri vegferð sem stjórnendur Menningarfélagsins hafa verið á, sem er að skapa vinnustað þar sem allir hafa jöfn tækifæri til að vaxa, leiða og hafa áhrif. Jafnvægisvogin er hreyfiaflsverkefni á

Secret Link