Til baka
19 Feb 2011

Lights on the highway

Hljómsveitin hefur starfað frá árinu 2004 en meðlimir hljómsveitarinnar eru þeir Kristófer Jenson, Agnar Eldberg, Karl Daði Lúðvíksson, Stefán Örn Gunnlaugsson og Þórhallur Stefánsson.

Hljómsveitin hefur sent frá sér tvær breiðskífur. Sú fyrri bar sama nafn hljómsveitarinnar og kom út árið 2005. Önnur plata sveitarinnar, Amanita Muscaria, kom út 2009 og var hún tilnefnd sem besta breiðskífa ársins fyrir Íslensku tónlistarverðlanin árið 2010.

Mörg lög þeirra drengja hafa ratað ofarlega á vinsældarlistum útvarpsstöðvanna. Þar ber helst að nefna lagið , Leiðin heim, sem var eitt af mest spiluðum lögum ársins 2010. Önnur lög sem hafa gert það gott á öldum ljósvakans má nefna , A little bit of Everything, She takes me home, Paperboat og svo nýlega Taxi sem drengirnir sendu frá sér í lok janúar á þessu ári.

Strákarnir eru nú í óða önn að undirbúa upptökur á sinni þriðju breiðskífu sem áætluð er að komi út seinnipart þessa árs. Tónleikar hljómsveitarinnar hafa þótt skara fram úr. Metnaðarfullar lagasmíðar, þéttur samleikur og þríraddaður söngur gerir hljómsveitina einstaka á sínu sviði. Tónlistin þykir vera framúrstefnuleg en jafnframt melódísk í anda síðrokks sjöunda áratugarins.

Miðaverð aðeins 1.000 kr.

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

27 Oct 2026
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi

Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.

15 Oct 2026
Menningarfélag Akureyrar hlýtur viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026

Menningarfélag Akureyrar hefur hlotið viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026 fyrir að hafa náð markmiði um kynjajafnvægi í efsta stjórnendalagi. Þetta er ekki einungis áfangi heldur staðfesting á þeirri vegferð sem stjórnendur Menningarfélagsins hafa verið á, sem er að skapa vinnustað þar sem allir hafa jöfn tækifæri til að vaxa, leiða og hafa áhrif. Jafnvægisvogin er hreyfiaflsverkefni á

Secret Link