Til baka
17 May 2021

Listviðburðaröð VERÐANDI í sumar í tilefni 10 + 1 afmæli Hofs

Listviðburðaröð VERÐANDI er haldin í tilefni af 10 + 1 árs afmæli Hofs og fer fram í sumar. Hátt í 30 umsóknir bárust, en styrkþegar þessa árs eru tíu talsins. Við Listviðburðaröðina bætast þrír styrkþegar VERÐANDI frá fyrra ári, sem frestuðust vegna heimsfaraldursins, og því er óhætt að segja að hún sé fjölbreyttari en áður og gefur fleira ungu fólki tækifæri til að koma fram á þeim framúrskarandi vettvangi sem Hof er.

 

Styrkþegar þessa árs eru:

 

Alexander Edelstein – Píanótónleikar Alexanders Edelstein

Diana Sus – Winter Lullabies og Summer Jazz

Einar Óli Ólafsson (iLo) – iLo tónleikar

Egill Jónsson – Ljónagryfjan

Guðný Ósk Karlsdóttir- Sönglög Sigfúsar Halldórssonar

Laufey S. Haraldsdóttir og Sólborg Valdimarsdóttir – Töfrandi heimur flyglanna

Ólöf Ósk og Arna Sif Þorgeirsdætur – Tveir vinstri fætur

Sólrún Svava Kjartansdóttir – Kammerhópurinn Bjargir

TOR – Tómleikar

Viktoría Sigurðardóttir – Söngleikurinn Fimm ár

 

Styrkþegar frá fyrra ári sem verða hluti af Listviðburðaröðinni:

Birkir Blær – Birkir Blær í Black Box

Halla Ólöf Jónsdóttir – Sönglög Jórunnar Viðar

Þóra Kristín Gunnarsdóttir – Gamlir og nýir tímar – Sónötur fyrir selló og píanó

 

Fyrsti viðburður í Listviðburðaröð VERÐANDI fer fram fimmtudaginn 27. maí kl 20 þegar píanóleikarinn Alexander Edelstein heldur einleikstónleika sína í Menningarhúsinu Hofi. Á tónleikunum, sem haldnir eru í tilefni af námslokum hans við Listaháskóla Íslands, mun Alexander spila Rachmaninoff Corelli variations og Beethoven sónötu op.10 no. 3 ásamt öðrum völdum verkum.

Allar nánari upplýsingar um Listviðburðaröð VERÐANDI má nálgast á mak.is

 

 

VERÐANDI er samstarfsverkefni Akureyrarbæjar, Menningarfélagsins Hofs og Menningarfélags Akureyrar.

 

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

27 Oct 2026
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi

Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.

15 Oct 2026
Menningarfélag Akureyrar hlýtur viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026

Menningarfélag Akureyrar hefur hlotið viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026 fyrir að hafa náð markmiði um kynjajafnvægi í efsta stjórnendalagi. Þetta er ekki einungis áfangi heldur staðfesting á þeirri vegferð sem stjórnendur Menningarfélagsins hafa verið á, sem er að skapa vinnustað þar sem allir hafa jöfn tækifæri til að vaxa, leiða og hafa áhrif. Jafnvægisvogin er hreyfiaflsverkefni á

Secret Link