Til baka
18 Dec 2024

Litla Hryllingsbúðin opnar aftur um páskana á Akureyri.

Sökum gífurlegra vinsælda og frábærra viðbragða við uppsetningu Leikfélags Akureyrar á Litlu Hryllingsbúðinni hefur verið ákveðið að setja upp aukasýningar á þessum skemmtilega söngleik í kringum páskana 2025.

Tekist hefur að ná öllum leikhópnum saman sem og öðrum aðstandendum á þeim tíma og því er það mikið gleðiefni að búið sé að raða upp 5 sýningum í viðbót.

Þetta gefur að sjálfsögðu tilefni fyrir alla Íslendinga að íhuga að taka páskafríið fyrir norðan, skíði á daginn, leikhús á kvöldin. Miðasala er hafin á www.mak.is og um að gera að hafa hraðar hendur þar sem húsfyllir var á nánast öllum sýningum í Samkomuhúsinu á Akureyri á nýliðnu hausti.

KAUPA MIÐA

KAUPA GJAFABRÉF

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

17 Nov 2026
Jólailmur í Hofi á sunnudaginn!

Sunnudaginn 22. nóvember mun árlega hönnunar- og handverkshátíðin Jólailmur fara fram í Menningarhúsinu Hofi frá kl. 12-19. Hátíðin hefur fest sig í sessi undanfarin ár og notið mikilla vinsælda meðal bæjarbúa og gesta. Yfir 30 þátttakendur taka þátt í hátíðinni í ár og verður boðið upp á fjölbreytt úrval af fallegri hönnun, handverki og ljúffengum

9 Nov 2026
Stór upptökuhelgi að baki hjá SinfoniaNord

Tónlist fyrir fjórðu þáttaröð sjónvarpsþáttanna Silo og framhald teiknimyndarinnar Lói, þú flýgur aldrei einn var hljóðrituð í Hofi um helgina. SinfoniaNord sinnti þar tveimur alþjóðlegum verkefnum á þremur dögum. Föstudaginn 6. nóvember tók hljómsveitin upp tónlist eftir Atla Örvarsson fyrir fjórðu og síðustu þáttaröð Silo. Þessir vinsælu vísindaskáldsöguþættir Apple TV skarta Rebeccu Ferguson í aðalhlutverki

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

Secret Link