Til baka
10 Jan 2024

Litla skrímslið og stóra skrímslið frumsýnt í Hofi á laugardaginn

Leikfélag Akureyrar frumsýnir barnaverkið Litla skrímslið og stóra skrímslið í Menningarhúsinu Hofi á laugardaginn.

Verkið um Litla skrímslið og stóra skrímslið er byggt á vinsælum bókum Áslaugar Jónsdóttur en þær hafa slegið í gegn hjá börnum frá fyrstu útgáfu árið 2004 og verið þýddar á ótal tungumál.

Leikritið Litla skrímslið og stóra skrímslið er falleg og einlæg saga um vináttu og samskipti. Verkið er sérstaklega ætlað yngri börnum þó fullyrða megi að öll fjölskyldan muni hafa gaman að uppátækjum og hjartnæmu sambandi skrímslanna.

Margrét Sverrisdóttir og Hjalti Rúnar Jónsson leika litla skrímslið og stóra skrímslið. Leikstjóri er Jenný Lára Arnórsdóttir. Um leikmynd og búninga sér Björg Marta Gunnarsdóttir en um tónlistina Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson. Gervin eru í höndum Hörpu Birgisdóttur en um hljóð og ljós sjá Árni F. Sigurðsson og Benni Sveinsson.

Þau sem fengu gjafabréf á verkið í jólagjöf er bent á að tryggja sér sæti sem fyrst með því að fara inn á mak.is eða hafa samband við miðasöluna í Hofi.

Þetta er í annað sinn sem leikritið um Litla skrímslið og stóra skrímslið er sýnt í atvinnuleikhúsi en verkið var frumsýnt í Þjóðleikhúsinu árið 2011 í leikstjórn Þórhalls Sigurðssonar við frábærar undirtektir.

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

9 Nov 2026
Stór upptökuhelgi að baki hjá SinfoniaNord

Tónlist fyrir fjórðu þáttaröð sjónvarpsþáttanna Silo og framhald teiknimyndarinnar Lói, þú flýgur aldrei einn var hljóðrituð í Hofi um helgina. SinfoniaNord sinnti þar tveimur alþjóðlegum verkefnum á þremur dögum. Föstudaginn 6. nóvember tók hljómsveitin upp tónlist eftir Atla Örvarsson fyrir fjórðu og síðustu þáttaröð Silo. Þessir vinsælu vísindaskáldsöguþættir Apple TV skarta Rebeccu Ferguson í aðalhlutverki

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

27 Oct 2026
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi

Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.

Secret Link