Til baka
22 Jun 2017

LMA sýnir í Hofi næsta vor

Leikfélag Menntaskólans á Akureyri (LMA) sýnir næsta leikverk sitt á fjölum Hamraborgar í Hofi. Menningarfélag Akureyrar og Leikfélag Menntaskólans á Akureyri skrifuðu á dögunum undir samning þess efnis. Það gafst tilvalið tækifæri núna á næsta starfsári Menningarfélagsins að bjóða LMA að vera með æfingaaðstöðu og sýningar í Hofi þar sem uppfærslur Leikfélags Akureyrar og gestasýningar þess verða allar í Samkomuhúsinu í ár.

Kristín Sóley Björnsdóttir viðburðastjóri Menningarfélagsins fagnar þessum samningi og segir „við hér hjá Menningarfélaginu höfum átt gott samstarf við LMA-inga þar sem þau settu jú upp sýningu sína Anný í Samkomuhúsinu nú í vor við góðan orðstír og áður var samstarf LMA mikið við LA. Í Hofi munu þau læra á nýtt hús, spreyta sig á stærra rými og leika fyrir fleiri áhorfendur í einu – það verður skemmtileg áskorun fyrir þau sem kallar á hugvitssemi, frjótt ímyndunarafl, lausnamiðaða hugsun og skemmtilegt samstarf og samvinnu við starfsfólk Menningarfélagsins. Við hlökkum mikið til að fá þessi hæfileikaríku ungmenni í hús sem mörg hver eru að stíga sín fyrstu skref með leiklistargyðjunni utan sviðs sem innan“.

 Við í stjórn LMA fögnum nýjum samningi við Menningarfélagið segir Soffía Stephensen formaður LMA. „ Þetta er skemmtileg breyting fyrir félagið en síðustu tvö ár hefur LMA sett sýningar sínar upp í Samkomuhúsinu og gengið vel. Það verður gaman að takast á við nýjar áskoranir og það eru spennandi tímar framundan hjá LMA. Við erum afar þakklát fyrir það tækifæri og traust sem við höfum fengið.”

Upplýst verður á haustdögum hvaða verk verður sett upp. Frumsýnt verður 9. Mars í Hamraborg í Menningarhúsinu Hofi.

 

 

 

 

 

 

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

9 Nov 2026
Stór upptökuhelgi að baki hjá SinfoniaNord

Tónlist fyrir fjórðu þáttaröð sjónvarpsþáttanna Silo og framhald teiknimyndarinnar Lói, þú flýgur aldrei einn var hljóðrituð í Hofi um helgina. SinfoniaNord sinnti þar tveimur alþjóðlegum verkefnum á þremur dögum. Föstudaginn 6. nóvember tók hljómsveitin upp tónlist eftir Atla Örvarsson fyrir fjórðu og síðustu þáttaröð Silo. Þessir vinsælu vísindaskáldsöguþættir Apple TV skarta Rebeccu Ferguson í aðalhlutverki

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

27 Oct 2026
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi

Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.

Secret Link