Til baka
2 Jun 2025

Magnaði Mendelssohn og Myndlistarsýningin Línumál um helgina

 

Kl 14:00 verður opnun myndlistarsýningarinnar Línumál eftir Vikar Mar. Vikar (f. 1999) er myndlistarmaður búsettur og starfandi á Hjalteyri við Eyjafjörð. Hann vinnur aðallega málverk, þar sem efniskennd, endurtekning og táknmyndir mynda kjarnann í sjónrænni rannsókn hans. Vikar notar aðallega akrílmálningu á striga, en hefur jafnframt þróað verk á fundna fleti og efni úr nærumhverfinu.

Í sýningunni Línumál heldur Vikar Mar áfram rannsókn sinni á eðli málverksins sem miðils merkingar, skynjunar og efnis. Á sýninguni dregur hann fram sjónrænt málkerfi sem byggir á síendurtekinni línulegri mótun. Línan er í þessu samhengi bæði formgerð og tákn, hreyfing og ummerki, sem vísa út fyrir hefðbundin mörk túlkunar.

Kl 20:00 verða svo síðustu VERÐANDI tónleikar þessa sýningarárs verða haldnir hjá okkur.Hljómsveit Akureyrar heldur tónleikana Magnaði Mendelssohn, fiðlukonsert í E moll og er talinn einn sá fallegasti í heimi. Miðasala er hér en vakin er athygli á því að Hljómsveit Akureyrar býður öllum þeim sem hafa giftst á árinu að þiggja aðgöngumiða á tónleika sem brúðkaupsgjöf!

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

27 Oct 2026
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi

Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.

15 Oct 2026
Menningarfélag Akureyrar hlýtur viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026

Menningarfélag Akureyrar hefur hlotið viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026 fyrir að hafa náð markmiði um kynjajafnvægi í efsta stjórnendalagi. Þetta er ekki einungis áfangi heldur staðfesting á þeirri vegferð sem stjórnendur Menningarfélagsins hafa verið á, sem er að skapa vinnustað þar sem allir hafa jöfn tækifæri til að vaxa, leiða og hafa áhrif. Jafnvægisvogin er hreyfiaflsverkefni á

Secret Link