Til baka
30 Apr 2024

Magnaður maí hjá Menningarfélagi Akureyrar

Sumarið heilsar með  áheyrnarprufu fyrir Litlu Hryllingsbúðina 1. maí þar sem leitinni að Auði heldur áfram. Í þetta skipti fara prufurnar fram á Akureyri en prufur hafa þegar farið fram í borginni. Sýningar á söngleiknum Litla Hryllingsbúðin hefjast í október en  forsölutilboð er í fullum gangi á mak.is.

Núna á laugardaginn, 4. maí, verður opnuð myndlistarsýningin Forðabúr hjartans þar sem 43 félagar í Myndlistafélaginu sýna verk sín.

Sama dag er komið að  ABBA sýningunni Waterloo með þeim Elísabetu Ormslev, Regínu Ósk, Stefaníu Svavars og Jóhönnu Guðrúnu. Tvennar sýningar verða, klukkan 17 og klukkan 21. Enn er hægt að tryggja sér miða á mak.is.

Á sunnudaginn, 5. maí, fer fram 10 ára afmælissýning DSA. Á sýningunni koma fram nemendur á aldrinum 2 – 60 ára.

Fiðringur á Norðurlandi verður haldinn í Hofi í þriðja sinn þann 8. maí. Tíu skólar taka þátt í ár og mætast þeir á úrslitakvöldinu og sýna afrakstur vinnu sinnar. RÚV mun taka upp atriðin og birta þau á sínum miðlum.

Laugardaginn 11. maí er komið að tónleikunum Í fjallasal – töfratónar Griegs þar sem áhorfendur fljúga á vængjum söngsins til Noregs. Viðburðurinn nýtur styrks frá Verðandi listsjóðs.

Enginn annar en Herra Hnetusmjör heldur  fjölskyldutónleika í Hofi 20. maí. Herra mun halda tvenna tónleika, þá fyrri klukkan 14 og þá síðari klukkan 16. Enn eru lausir miðar á mak.is.

Þetta er aðeins brot af viðburðum sem fara fram í maí mánuði. Til að mynda eru fjöldi vortónleika sem og framhaldsprófs tónleika Tónlistarskólans á Akureyri, danssýning Steps og útskrift Verkmenntaskólans á Akureyri. Fylgist með á mak.is!

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

27 Oct 2026
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi

Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.

15 Oct 2026
Menningarfélag Akureyrar hlýtur viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026

Menningarfélag Akureyrar hefur hlotið viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026 fyrir að hafa náð markmiði um kynjajafnvægi í efsta stjórnendalagi. Þetta er ekki einungis áfangi heldur staðfesting á þeirri vegferð sem stjórnendur Menningarfélagsins hafa verið á, sem er að skapa vinnustað þar sem allir hafa jöfn tækifæri til að vaxa, leiða og hafa áhrif. Jafnvægisvogin er hreyfiaflsverkefni á

Secret Link