Til baka
18 Dec 2025

Majó flytur starfsemi sína í Hof

Majó, einn besti sushi staður landsins, mun færa sig um set á nýju ári og flytja úr elsta húsi bæjarins yfir í menningarhúsið Hof. Veitingastaðurinn Majó hefur verið staðsettur í Laxdalshúsi um árabil og hefur sérhæft sig í sushigerð við mjög góðan orðstír. Staðurinn er auk þess þekktur fyrir aðlaðandi stemningu, sushi námskeið og girnilega Pop-up viðburði í Eyjafirði og víðar.

Menningarfélag Akureyrar hefur gert samning við rekstraraðila staðarins, bræðurna Magnús Jón og Alexander Magnússyni, Ídu Irene Oddsdóttur og Aðalstein Óla Magnússon um veitingarekstur í húsakynnum Hofs sem hefjast mun á upphafsmánuðum 2026.

Áhersla verður lögð á spennandi veitingar, með asískum áhrifum, þar sem sushi leikur stórt hlutverk. Fastagestir Majó, sem og aðrir, geta því haldið áfram að njóta veitinga staðarins  á nýjum stað í hádeginu og á kvöldin, í skammdeginu sem og yfir bjartasta tíma ársins.

„Við erum afar spennt að opna dyr Majó í Menningarhúsinu Hofi á nýju ári og bjóða gesti velkomna með pompi og prakt. Ný húsakynni gefa okkur skemmtileg tækifæri til áframhaldandi þróunar á þeirri þjónustu sem við veitum, svo sem veitingarekstri á ársgrundvelli, Pop-up viðburðum og áframhaldandi sushinámskeiðahaldi, svo ekki sé talað um móttöku fjölbreyttra hópa sem kallar á ólíkar nálganir í matargerð og þjónustu“ segja aðstandendur Majó ehf með tilhlökkunarblik í auga.

„Ég fagna því að samningar hafi náðst við þessa flottu og reynsluríku aðila. Þetta er virkilega spennandi nýbreytni hér í Hofi og ég hlakka til samstarfsins. Um leið vil ég þakka fráfarandi rekstraraðilum H90 fyrir samstarfið síðustu ár og óska þeim velfarnaðar í þeim verkefnum sem við taka hjá þeim,“ segir Eva Hrund Einarsdóttir, framkvæmdastjóri Menningarfélags Akureyrar.

Formleg opnun Majó verður auglýst í upphafi nýs árs.

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

9 Nov 2026
Stór upptökuhelgi að baki hjá SinfoniaNord

Tónlist fyrir fjórðu þáttaröð sjónvarpsþáttanna Silo og framhald teiknimyndarinnar Lói, þú flýgur aldrei einn var hljóðrituð í Hofi um helgina. SinfoniaNord sinnti þar tveimur alþjóðlegum verkefnum á þremur dögum. Föstudaginn 6. nóvember tók hljómsveitin upp tónlist eftir Atla Örvarsson fyrir fjórðu og síðustu þáttaröð Silo. Þessir vinsælu vísindaskáldsöguþættir Apple TV skarta Rebeccu Ferguson í aðalhlutverki

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

27 Oct 2026
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi

Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.

Secret Link