Til baka
18 Feb 2011

Menning í dag, menning á morgun?

Menningarhúsið Hof og Tónlistarskólinn á Akureyri efna til málþingsins, yfirskriftin er „Menning í dag, menning á morgun?” 

Frummælendur:

Þórgnýr Dýrfjörð, framkvæmdarstjóri Akureyrarstofu Mósaíkmyndin AkureyriÍ erindinu mun hann draga upp mynd af menningarstarfi á Akureyri. Meginspurningar verða: Hvað er þetta menningarlíf, hvar kemur opinber stuðningur við sögu, hvaða stefnu hefur Akureyrarbær fylgt hingað til og hvað er framundan?

Pétur Halldórsson, menningarviti. Akureyri á heimsmælikvarða – að hugsa hátt eða lágt í menningarlífinu.Í erindinu fjallar hann um að Akureyringar þurfi að hugsa jafnhátt í menningarstarfinu sjálfu og þeir hugsuðu þegar ákveðið var að reisa menningarhús fyrir þrjá milljarða króna. Stefna verður að því að á Akureyri starfi listafólk sem er að minnsta kosti á landsmælikvarða, helst á heimsmælikvarða. Þar skiptir þrennt mestu máli, menntun, reynsla og eldmóður. Til þess að þetta megi takast verði að fá fyrirtæki og stofnanir í bænum til að styðja við menningarlífið með myndarlegri hætti. Hann ætlar líka að vekja athygli á milljónastyrkjum fyrirtækja á Akureyri og nágrenni við Frostrósir og jólatónleika Björgvins Halldórssonar fyrir nýliðin jól.

Dr. Margrét Sigrún Sigurðardóttir, lektor við viðskiptafræðideild HÍ og umsjónarmaður rannsókarmiðstöðvar skapandi greina Skapandi atvinnugreinar á Íslandi Margrét hefur undnanfarna mánuði unnið við kortlagningu skapandi greina á Íslandi, en frum niðurstöður hennar voru kynntar fyrir fullu húsi í Bíó Paradís 1. desember síðast liðinn. Margrét mun kynna helstu niðurstöður kortlagningarinnar og hver næstu skref í rannsóknum á skapandi atvinnugreinum eru.

Trond Wika, fiðluleikari/kennari Tengslin á milli mennta- og menningarstofnanaNorðmaðurinn Trond Wika nam fiðluleik við Norska Ríkistónlistarháskólann í Oslo og í Bandaríkjunum þar sem hann lagði stund á kammer- og einleikstónlist.  Hann Debúteraði í París og hefur síðan þá leikið á tónleikum víðs vegar um heiminn sem einleikari og meðlimur í kammersveitum.  Trond hefur verið ríkislistamaður í Morsjöen síðan árið 1997 þar sem hann leiðbeinir nemendum sem hafa náð góðum árangri í stórum tónlistarkeppnum og starfar í dag sem stjórnandi Helgeland Sinfoniettunnar.

Dr. Bjarki Valtýsson, aðjúnkt við IT háskólann í Kaupmannahöfn. Íslensk menning árið 2050 – Hlutverk sveitarfélagaHann byggir erindið á rannsókn sinni um íslenska menningarpólitík og mun hann sérstaklega beina sjónum að framtíðarhorfum íslenska menningarvettvangsins og stöðu sveitarfélaga innan hans.

Einnig fara fram pallborðsumræður og þar taka þátt, Gunnar Gíslason fræðslustjóri á Akureyri, Halla Björk Reynisdóttir formaður stjórnar Akureyrarstofu, Karitas H. Gunnarsdóttir skrifstofustjóri menningarmála hjá Mennta- og menningarmálaráðuneytinu, Pétur Halldórsson , Dr. Margrét Sigrún Sigurðardóttir og Dr. Bjarki Valtýsson. Fundarstjóri er Jón Hrólfur Sigurjónsson.

Málþingið fer fram í Hömrum, 1. hæð, Hofi og stendur frá kl. 13.00-17.00. Allir velkomnir og enginn aðgangseyrir. Skrá þarf þátttöku fyrir 17. febrúar á netfangið: larasoley@menningarhus.is

 

 

 

 

 

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

17 Nov 2026
Jólailmur í Hofi á sunnudaginn!

Sunnudaginn 22. nóvember mun árlega hönnunar- og handverkshátíðin Jólailmur fara fram í Menningarhúsinu Hofi frá kl. 12-19. Hátíðin hefur fest sig í sessi undanfarin ár og notið mikilla vinsælda meðal bæjarbúa og gesta. Yfir 30 þátttakendur taka þátt í hátíðinni í ár og verður boðið upp á fjölbreytt úrval af fallegri hönnun, handverki og ljúffengum

9 Nov 2026
Stór upptökuhelgi að baki hjá SinfoniaNord

Tónlist fyrir fjórðu þáttaröð sjónvarpsþáttanna Silo og framhald teiknimyndarinnar Lói, þú flýgur aldrei einn var hljóðrituð í Hofi um helgina. SinfoniaNord sinnti þar tveimur alþjóðlegum verkefnum á þremur dögum. Föstudaginn 6. nóvember tók hljómsveitin upp tónlist eftir Atla Örvarsson fyrir fjórðu og síðustu þáttaröð Silo. Þessir vinsælu vísindaskáldsöguþættir Apple TV skarta Rebeccu Ferguson í aðalhlutverki

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

Secret Link