Til baka
15 Oct 2026

Menningarfélag Akureyrar hlýtur viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026

Menningarfélag Akureyrar hefur hlotið viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026 fyrir að hafa náð markmiði um kynjajafnvægi í efsta stjórnendalagi. Þetta er ekki einungis áfangi heldur staðfesting á þeirri vegferð sem stjórnendur Menningarfélagsins hafa verið á, sem er að skapa vinnustað þar sem allir hafa jöfn tækifæri til að vaxa, leiða og hafa áhrif.

Jafnvægisvogin er hreyfiaflsverkefni á vegum FKA sem hefur það að markmiði að stuðla að auknu jafnvægi kynja í stjórnunarstöðum íslenskra fyrirtækja, sveitarfélaga og stofnana. Menningarfélag Akureyrar rekur Menningarhúsið Hof, Leikfélag Akureyrar og Sinfóníuhljómsveit Norðurlands. Starfsemin er fjölbreytt og spannar allt frá listsköpun og listrænni stjórnun til viðburðahalds. 

Jafnrétti hluti af stefnu félagsins

Í opinberri stefnu Menningarfélags Akureyrar er sérstaklega kveðið á um að gæta skuli jafnra kynjahlutfalla í verkefnum og ráðningum. Sú áhersla nær einnig til listrænnar starfsemi félagsins. Félagið hefur jafnframt innleitt jafnlaunakerfi sem hefur það að markmiði að tryggja að öll kyn njóti sömu launa fyrir sömu eða jafn verðmæt störf og hafi jöfn tækifæri til starfsþróunar og áhrifa. “Fjölbreytt sjónarmið, reynsla og hæfileikar eru mikilvægur styrkur í skapandi starfsemi þar sem samstarf ólíkra fagstétta er forsenda árangurs. Það á ekki síst við hjá Menningarfélagi Akureyrar, þar sem listsköpun, menningarstarf og fjölbreyttur rekstur mætast undir einu þaki,” segir Eva Hrund Einarsdóttir, framkvæmdastjóri. Fyrir hönd Menningarfélags Akureyrar fagnar Eva viðurkenningunni og þakkar Félagi kvenna í atvinnulífinu fyrir framtakið. “Við hjá Menningarfélagi Akureyrar munum áfram leggja áherslu á að skapa vinnustað þar sem öll fá tækifæri til að vaxa, leiða og hafa áhrif.”

#Losumumhnútinn

Þórunn Geirsdóttir tekur á móti viðurkenningunni fyrir hönd Menningarfélags Akureyrar

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

9 Nov 2026
Stór upptökuhelgi að baki hjá SinfoniaNord

Tónlist fyrir fjórðu þáttaröð sjónvarpsþáttanna Silo og framhald teiknimyndarinnar Lói, þú flýgur aldrei einn var hljóðrituð í Hofi um helgina. SinfoniaNord sinnti þar tveimur alþjóðlegum verkefnum á þremur dögum. Föstudaginn 6. nóvember tók hljómsveitin upp tónlist eftir Atla Örvarsson fyrir fjórðu og síðustu þáttaröð Silo. Þessir vinsælu vísindaskáldsöguþættir Apple TV skarta Rebeccu Ferguson í aðalhlutverki

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

27 Oct 2026
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi

Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.