Til baka
27 Aug 2021

Menningarhúsið Hof auglýsir til leigu eldhúsaðstöðu í kjallara Hofs

Menningarhúsið Hof auglýsir til leigu eldhúsaðstöðu í kjallara Hofs. Um er að ræða u.þ.b. 30 fermetra eldunarrými sem er fullbúið flestum þeim tækjum sem þarf til framleiðslu matvæla. Hluti rýmisins og tækja er samnýtt með veitingarekstri á jarðhæð sem hefur jafnframt forgang í sameiginleg tæki. Gerð er krafa um að leigjendur geti þjónustað kaffihús sem rekið er á jarðhæð Hofs.

Notkun leigjandans á rýminu takmarkast við almennan opnunartíma Hofs. Leigusamningur yrði gerður til 31. júlí 2022.

Nálgast má teikningar hér. 

Nánari upplýsingar veitir Þuríður Helga Kristjánsdóttir framkvæmdastjóri Menningarfélags Akureyrar; netfang: thuridur@mak.is.

Óskað er eftir tilboðum í leigu fyrir umrætt rými og rennur frestur til þess að skila inn tilboðum er til 10. september 2021. Tilboðum skal skila inn á netfangið umsoknir@mak.is merktar eldhús.

 

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

9 Nov 2026
Stór upptökuhelgi að baki hjá SinfoniaNord

Tónlist fyrir fjórðu þáttaröð sjónvarpsþáttanna Silo og framhald teiknimyndarinnar Lói, þú flýgur aldrei einn var hljóðrituð í Hofi um helgina. SinfoniaNord sinnti þar tveimur alþjóðlegum verkefnum á þremur dögum. Föstudaginn 6. nóvember tók hljómsveitin upp tónlist eftir Atla Örvarsson fyrir fjórðu og síðustu þáttaröð Silo. Þessir vinsælu vísindaskáldsöguþættir Apple TV skarta Rebeccu Ferguson í aðalhlutverki

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

27 Oct 2026
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi

Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.

Secret Link